14.08.1917
Neðri deild: 33. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 2130 í B-deild Alþingistíðinda. (2204)
154. mál, fóðurbætiskaup
Atvinnumálaráðherra (S. J.):
Gagnvart ræðu hv. 1. þm. S.-M. (Sv. Ó.) skal jeg geta þess, að landsstjórnin hefir hugsað sjer, ef til mála kæmi að kaupa þessa síld, að láta hina lögskipuðu síldarmatsmenn á Akureyri skoða síldina, og því að eins kaupa, að þeir telji hana allgóða vöru.