16.08.1917
Efri deild: 32. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 2130 í B-deild Alþingistíðinda. (2207)
154. mál, fóðurbætiskaup
Karl Einarsson:
Jeg vil að eins skýra frá því, að tillaga þessi hefir verið athuguð á sameiginlegum fundi bjargráðanefnda beggja deilda þingsins, og að nefndirnar eru báðar samdóma um, að rjett sje, að hún nái fram að ganga.
Það er því óþarft, að till., að lokinni þessari umræðu, verði vísað til nefndar hjer í háttv. deild.