07.09.1917
Efri deild: 50. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 2144 í B-deild Alþingistíðinda. (2227)

157. mál, landsreikningarnir 1914 og 1915

Magnús Torfason:

Jeg bjóst við því, að háttv. nefnd mundi svara athugasemd minni, en það hefir þó ekki orðið. Hjer sýnist vera um svo alvarlegt mál að ræða, að rjett hefði verið, að hún hefði leitað sjer rækilegra upplýsinga um það.

Það var misskilningur hjá hæstv. fjármálaráðh. (S.E.), að jeg væri að spyrja um gróða eða tap landsverslunarinnar. Jeg óskaði að eins skýringar á 163. athugasemd yfirskoðunarmanna landsreikninganna. Og því hefi jeg ekki fengið enn neitt svar við spurningum mínum.

Hæstv. fjármálaráðh. (S. E.) sagði, að auka þyrfti starfskrafta stjórnarráðsins til þessarar endurskoðunar, og er það ekki nema sjálfsagt, að veitt sje til þess það fje, sem þarf.

Í sambandi við þetta vil jeg minnast á 3. tillöguna, um að herða á eftirlitinu með reikningshöldurum landssjóðs, og skal jeg það síst lasta, enda er það vörn gegn tortrygni þeirri, sem bólað hefir á gegn þeim.

En mjer finst að hjer skjóti talsvert skökku við. Þar er eftirlitið svo nákvæmt, að leitað er að jafnvel eineyringi alla leið frá Öndverðanesi austur að Gerpi. Og reikningshaldarar verða að afgreiða reikninga sína í flýti; það hefir ekki verið gætt að því, að reglurnar um reikningsskil eru nærri því hálffimtugar og að ástandið er orðið mjög breytt síðan. Það var eðlilegt þá, að menn gætu sent reikninga sína í lok febrúarmánaðar, en nú er það svo að segja ómögulegt í stærri embættum. Ef fylgja á þessum reglum, yrðu reikningshaldarar að bæta við sig skrifurum, en til þess eru launin oflág, og það er ekki hægt að nota aukastarfskrafta til þess, vegna þess, að starfsvanir menn fást eigi utan Reykjavíkur. En svo sje jeg ekki betur en að öll reikningsskil frá reikningshöldurum sjeu miklu skýrari en afgreiðsla landsstjórnarinnar á endurskoðunarstörfunum.

Það hefir komið fyrir, að athugasemdir við reikninga koma fyrst á 3. ári eftir að þeir voru samdir, og ef um nokkra verulega ábyrgð væri þar að ræða, þá verð jeg, fyrir mitt leyti, að neita því að taka hana á mig eftir svo langan tíma, því að þá getur oft verið svo komið, að ekki sje hægt að fá neitt hjá viðkomandi mönnum, og að reikningshaldari verði því að borga það sjálfur.

Jeg vænti fastlega, að sama nákvæmnin og sömu eftirgangsmunirnir verði hafðir að því er landsverslunina snertir, og sjerstaklega, að ábyggileg vörutalning fari fram og fullkomin endurskoðun í sambandi við hana.

Jeg heyri, að hæstv. fjármálaráðherra (S.E.)leggur áherslu á að fá málið upplýst, og gleður það mig, og vænti jeg að heyra frá honum hið fyrsta.