25.08.1917
Neðri deild: 43. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 2171 í B-deild Alþingistíðinda. (2254)
170. mál, útibú í Árnessýslu frá Landsbanka Íslands
Flm (Einar Arnórsson):
Jeg tók fram áðan, að jeg vissi, að landsstjórnin rjeði málinu til lykta í samráði við bankastjórnina. Jeg veit, að það getur ekki öðruvísi verið. Jeg set þetta mál ekki í neitt samband við útibúið á Austurlandi. Jeg býst við, að það sje komið lengra, og úr því að það er afráðið að stofna það, mun það ganga fyrir. Jeg lýsti yfir því hjer í deildinni áður, að jeg ætlaðist ekki til, að með þessu væru neinar hömlur settar útibúinu á Austurlandi, en skal bæta því við nú, að dæmi eru til, að slíkar þingsályktunartill. sjeu samþyktar, svo sem 1914 og 1915, í sambandi við útibúið á Austurlandi. Voru þær samþyktar í báðum tilfellum, og stjórnin skaut þeim báðum til landsbankastjórnarinnar, og er árangurinn þessi, að stofnun útibúsins á Austurlandi má teljast afráðin.