27.08.1917
Neðri deild: 44. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 2176 í B-deild Alþingistíðinda. (2261)
171. mál, verð á landssjóðsvöru
Atvinnumálaráðherra (S. J.):
Það er fjarri því, að jeg vilji svæfa málið með þeirri tillögu minni að vísa málinu til bjargráðanefndar. Jeg hefi einmitt hugsað mikið um það, hvort ekki væri hægt að koma máli þessu í svipað horf og tillagan bendir á, og þætti mjer vænt um að fá að heyra rökstutt álit fleiri háttv. þm. um það, hvernig málinu yrði á sem bestan hátt hrundið í það horf, sem aðallega virðist vaka fyrir flutnm.