27.08.1917
Neðri deild: 44. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 2176 í B-deild Alþingistíðinda. (2262)

171. mál, verð á landssjóðsvöru

Sigurður Stefánsson:

Það gladdi mig að mæta þessari tillögu þegar á hinum fyrsta fundi, er jeg sit á í þinginu að þessu sinni, þótt jeg sje lítt viðbúinn, sökum ókunnugleika á því, sem á undan er gengið í málinu, að taka verulegan þátt í umr.

Það get jeg þó fullyrt, að hinn mikli verðmunur, sem er á landssjóðsvörunum í Reykjavík og úti um land, hefir vakið allmikla óánægju. Og einstakir menn, sem jeg átti tal við, eftir að jeg var orðinn þingmaður, báðu mig umfram alt að stuðla að því, að bót yrði ráðin á þessu misrjetti. Menn úti um land líta nú þannig á það, og þykir þeim, hart, að sumir þurfi að borga vöru þá, sem þó er öll keypt fyrir sameiginlegt landsins fje, 4—5%, og þaðan af meira, hærra en Reykvíkingar og þeir, sem búa þar í grendinni. Þetta er ekki sprottið af öfund til þeirra, sem betri kostanna njóta, heldur af því, að það særir jafnrjettistilfinning manna.

Það er hart að þurfa að borga vöruna á næstu höfnum við Reykjavík 4—5 % dýrari en hún er hjer. En nú er í ráði að greina landssjóðsverslunina frá hinum öðrum stjórnarstörfum og fela hana sjerstökum manni, og þá ætti þeim góða manni, í samráði við stjórnina, ekki að vera minna ætlandi en að finna þá leið, sem allir mættu vel við una. Mjer getur vel skilist, að það sje nokkrum örðugleikum bundið að skipa vörunum upp víðar en á þessum eina stað. En nú mun stjórnin hafa betri ök strandferða en áður, og því hefir vaknað hjá mjer sú spurning, hvort stjórnin gæti ekki dreift vörunni betur út en hingað til hefir verið gert, svo að henni væri einnig skipað upp á hinar aðrar aðalhafnir landsins, sem skip ganga nokkuð reglulega á. Jeg slæ þessu að eins fram, því að jeg fæ ekki skilið, hvers vegna þessi vegur ætti ekki að vera fær, þegar landsstjórnin fær auknum samgöngukröftum yfir að ráða. Jeg treysti því fullkomlega, að stjórnin afmái það ójafnrjetti, sem hingað til hefir ríkt, en auk þess væri með þessari leið, sem jeg hefi bent á, geymslan betur trygð en með því móti að demba öllu upp á einn stað hjer í Reykjavík, þar sem mikill vinnukraftur fer í það að verja vöruna skemdum. Jeg skil ekki, fyr en ráðherrarnir sýna fram á hið gagnstæða, að þetta sje ógerningur. Allir landsmenn eiga jafnan rjett á að fá vöruna með sama verði, og engin hjeruð eiga að hafa nein einkarjettindi í þessu efni. Jeg mun því greiða atkvæði með þessari þingsályktunartillögu, en sje enga þörf á að vísa henni til bjargráðanefndar, því að sú nefnd mun hafa mörgum og miklum störfum að gegna fyrir, og auk þess álít jeg málið svo mikilsvarðandi, að því beri að hraða sem mest.