11.09.1917
Neðri deild: 57. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 2198 í B-deild Alþingistíðinda. (2277)

171. mál, verð á landssjóðsvöru

Þórarinn Jónsson:

Jeg hefi áður látið í ljós skoðun mína á málinu, og hefi því ekki miklu við að bæta, enda hefir svo margt verið tekið fram, sem jeg hefði sagt. Það er nú svo með till., að það er líklega sama, hvort hún verður samþ. eða ekki, úr því að hæstv. stjórn hefir tekið undir með nefndinni, því að stjórnin fer þá sjálfsagt eftir sínum vilja sem áður, hvað sem þingið segir. Það hefir ekki verið enn haldinn hjer í Reykjavík borgarafundur um þetta mál, en það gæti farið svo, að það yrði haldinn um það landsfundur, sem hefði engu óákveðnari skoðanir á því. Það lítur út fyrir, að þótt umkvartanir komi utan af landi, þá álíti stjórnin það svo lítils virði, að hún þurfi ekki að taka þær til greina. Aðalatriðið í þessu máli er það, hvernig eigi að leggja kostnaðinn á vöruna, og hefir nú verið allmikið um það talað, en mjer finst það svo ljóst, að það ætti að vera öllum skiljanlegt. Jeg veit ekki, hve mikinn forða þarf að meðaltali úti um land, en við skulum segja, að það sje helmingur allrar vörunnar; stjórnin hlýtur að vita, hve mikið af landssjóðsvörunni hún þarf að senda. Jeg veit ekki, hvað meðalfragt út um land er, en við getum gert hana 30 kr. á smálest. Þá þarf að leggja 15 kr. á hverja smálest, til þess að jafna öllum flutningskostnaðinum niður á alla landssjóðsvöruna, og það verða kr. 1,30 á sekk. Jeg get gert alveg rjetta grein fyrir þessu, en hefi að eins tekið dæmi, sem varla mun fara mjög fjarri sanni. Ef við aðgætum svo, hvað hver smálest kostar og hve mörg prósent þarf að leggja á vöruna fyrir flutningsgjaldinu, þá má gera ráð fyrir, að smálestin kosti 700 kr., því að hún kostar víst núna um 600 kr., en það má gera ráð fyrir, að hún hækki í verði. Ef smálestin af vörunni kostar 700 kr. og flutningskostnaðurinn á hverja smálest verður 15 kr., þá gerir hann 2,14% af vöruverðinu. Hlutfallið er þetta, en getur auðvitað orðið meira eða minna. Þótt varan hækkaði við það, að lagt væri á hana alt flutningsgjaldið, um 2—3%, þá væri það ekki gífurlegt, og mjer er alveg óskiljanlegt, að stjórnin skuli ekki geta lagt þetta á stórsöluverðið án þess, að kaupmenn hækki vörur sínar. Það geta verið til þær undantekningar, að kaupmenn hafi keypt »vöruparti« fyr og fyrir betra verð en stjórnin hefir átt kost á, en nú lítur út fyrir, að í framtíðinni verði það aðallega stjórnin, sem flytur vörur til landsins, og þá ætti það að vera enn þá hægra fyrir hana að fara eftir þessari þingsályktunartill. Jeg held, að háttv. nefnd hafi ekki gert sjer það vel ljóst, að hún þurfti að leita sjer upplýsinga um allan kostnað við þetta. Háttv. frsm. (E. A.) gat þess, að flutningsmaður brtt. væri nefndinni sammála, en það er öðru nær, því að hann vill einmitt ekki taka til greina ástæður nefndarinnar. Hins vegar get jeg ekki heldur sjeð, að brtt. bæti úr vandkvæðunum. Þótt svo væri til orða tekið í till., að landssjóðsvöruna skyldi selja með sama verði í öllum kauptúnum, þá var það meining okkar flutningsmanna, að það skyldi að eins vera á þeim höfnum, sem strandferðaskipin eru vön að koma á, og við þá skýringu hverfa allir vafningarnir með annað flutningsgjald. Það er öllum sýnilegt, að þótt dagskráin verði samþ., þá gefur hún stjórninni ekkert aðhald, eftir þeirri reynslu að dæma, sem við höfum frá síðasta þingi. Hæstv. atvinnumálaráðherra gat þess reyndar, að stjórnin myndi fara meir eftir þessari till. en þeirri, sem kom fram á síðasta þingi, og það er gott, bara ef reyndin verður ekki hin sama og áður. Nú hefir stjórnin selt einstaka vörutegundir með sama verði alstaðar, og ef það er hægt með sumar vörutegundir, þá ætti það að vera eins hægt með aðrar.

Jeg skal svo ekki gera þetta að frekara umtalsefni, því að það er búið að segja svo margt um þetta mál, og enda búið að taka margt af því fram, sem jeg ætlaði mjer að segja.