14.09.1917
Efri deild: 57. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 2222 í B-deild Alþingistíðinda. (2294)

171. mál, verð á landssjóðsvöru

Forseti:

Öll þessi vandræði eru sprottin af því, að atkvæðagreiðslufyrirkomulagið er úrelt og óhafandi. Þetta er sannleikurinn. Jeg segi þetta af því, að jeg vildi geta fengið næsta þingi í hendur leiðbeiningar um það, hvernig best er að haga atkvæðagreiðslu á löggjafarþingum. Það má ekki lengur svo til ganga, að við höldum þessari gömlu og úreltu aðferð. Þetta er nokkurskonar Bakkabræðraboðorð, að brtt. skuli altaf borin fyrst undir atkvæði. Það myndi álitin fjarstæða annarsstaðar á löggjafarþingum og verða að athlægi. Þetta eru þung orð, en jeg neyðist til að segja þau. Þegar milli tveggja till. er að velja, þá er rjettasta aðferðin að sjá, hvor þeirra hefir meiri byr. Bera því næst undir atkvæði þá till., er meira fylgi hafði.

En úr því að svo er komið, að við höfum notað þá gömlu og úreltu aðferð hingað til, þá hygg jeg best in errore perseverare — vaða áfram í villunni — og bera brtt. upp fyrst.