15.09.1917
Sameinað þing: 7. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 2224 í B-deild Alþingistíðinda. (2298)
171. mál, verð á landssjóðsvöru
Magnús Kristjánsson:
Þetta mál hefir verið talsvert rætt og athugað af háttv. Ed. og þar samþ. till. á þgskj. 898, þess efnis, að landssjóðsvörur verði seldar jöfnu verði í öllum kaupstöðum og kauptúnum landsins. En það er vitanlegt, að allmikill ágreiningur hefir verið í deildinni um þetta mál. Það má heita, að það hafi verið tveir nálega jafnstórir flokkar, annar sem hefir stutt till., en hinn sem hefir viljað hafna henni. Sá flokkurinn hefir þó viðurkent nauðsynina á því, að eitthvað sje gert til þess að koma í veg fyrir þann kostnaðarauka, sem af því stafar, að allar vörur landsverslunarinnar sjeu lagðar upp hjer í Reykjavík og síðan fluttar út um land með ærnum kostnaði. Háttv. Ed. taldi sjer skylt að koma fram með miðlunartill. í þessu máli, á þgskj. 957. Sú tillaga er að áliti bjargráðanefndar Ed. þannig löguð, að hún telur nokkurn veginn vissu fyrir því, að þingið geti fallist á hana, þar sem tekið er sem allra mest tillit til þeirra mismunandi skoðana í málinu, sem komið hafa fram í háttv. Nd. Ed. lítur svo á, að með því fyrirkomulagi, sem stungið er upp á í þessari till., þá megi, ef stjórn landsverslunarinnar er í nokkurn veginn viðunanlegu ásigkomulagi, koma þessu svo fyrir, að enginn verulegur kostnaðarauki verði af því, þótt nokkur hluti vörunnar sje lagður upp í kaupstöðunum úr þeim skipum, sem vöruna flytja milli landa; það yrði lítið á móts við þann kostnað, sem af því leiðir, að vörumar þurfa að flytjast úr Reykjavík á strandferðaskipunum út um land. Þessi kostnaður verður auðsjáanlega svo lítill og hverfandi, að það getur engin veruleg áhrif haft á verð vörunnar, þótt tekið væri tillit til hans við verðlagningu.
Með þessari skýringu þykist jeg geta lagt þessa till. fram fyrir hönd nefndarinnar, í von um það, að hún nái fram að ganga.
Jeg finn ekki ástæðu til að fjölyrða frekar um málið, nema ef umræðurnar, sem kunna að verða, gefa sjerstakt tilefni til þess.