15.09.1917
Sameinað þing: 7. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 2228 í B-deild Alþingistíðinda. (2304)
171. mál, verð á landssjóðsvöru
Magnús Kristjánsson:
Jeg álít það ekki viðeigandi að segja, að ræða háttv. þm. V.-Sk. (G. Sv.) hafi verið orðhengilsháttur einn, og þess vegna fullyrði jeg ekki, að svo hafi verið. En hitt má öllum vera ljóst, að verslunarmálaþekking hans er naumast meiri en gengur og gerist. Háttv. þm. (G. Sv.) taldi það ekki heppilegt að gera ráð fyrir framkvæmdum eins og í tillögunni. En nú er það vitanlegt, að landsstjórnin hefir lagt upp vörur, án þess að þær væru pantaðar. Þetta getur verið nauðsynlegt, því að ís og aðrar hindranir geta oft hamlað því, að hægt sje að flytja vörur, þegar þeirra þarf sjerstaklega með. En hitt fanst nefndinni sjálfsagt, að gerður væri greinarmunur á kaupstöðum og kauptúnum, til þess að skip þyrftu ekki að tefja sig á að fara inn á margar smáhafnir, heldur mætti senda vörurnar eftir hentugleikum og eftir því, sem pantað hefði verið.