23.08.1917
Efri deild: 37. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 2255 í B-deild Alþingistíðinda. (2351)
168. mál, fjallgöngur og réttir
Frsm. (Guðmundur Ólafsson):
Það gladdi mig, að hæstv. atvinnumálaráðherra talaði mjög hlýlega í garð þessarar þingsályktunartillögu og að hann var samþykkur ástæðum nefndarinnar, en sú ástæða er til, að nefndin færði fjallgöngurnar til um viku, að ella gátu rjettir lent á helgum degi, og að eigi munar nema um 1 dag, hvað rjettir verða seinna í haust, þótt frestað verði um 1 viku, miðað við það, sem þær verða að ári, vegna sumaraukans nú.
Vegna þess, að jeg gat þess áðan, að jeg hefði átt tal við hæstv. forsætisráðherra um málið, þá vil jeg taka það fram, að það var áður en till. kom fram, svo að vel má vera, að hann sje ekki með öllu samþ. orðalagi till.
Að fara nú að vinna að lagasetning um þetta finst mjer ekki vera unt, því að það er liðið svo langt á tímann, að það er varla unt, að sú leið sje fær til framkvæmda.
Landbúnaðarnefndinni er ekki kappsmál, hvernig till. er orðuð, og hefir því ekkert á móti því, að málið sje tekið út af dagskrá og umr. frestað til morguns, en henni er kappsmál um, að tilgangi till. verði náð.