23.08.1917
Efri deild: 37. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 2255 í B-deild Alþingistíðinda. (2352)
168. mál, fjallgöngur og réttir
Guðjón Guðlaugsson:
Mjer finst það vera illa farið, ef þessi till. getur ekki komist til framkvæmdar; mjer finst hjer vera að ræða um bráðnauðsynlega, sanngjarna og heppilega dýrtíðarráðstöfun, og eins og hv. frsm. (G. Ó.) tók fram, að hún mundi að miklum mun auka heyfeng manna og með því að nokkru koma í veg fyrir tjón og skaða þann, er dýrtíð veldur.
Hæstv. atvinnumálaráðherra tók það fram, að sumstaðar færu fjallgöngur fram eftir mánaðardegi, en jeg þekki þess hvergi dæmi. Alstaðar þar, sem jeg þekki til, fara fjallgöngur fram eftir vikudegi, og í sumar er sumarauki, svo að fjallgöngur fara nú sex dögum fyr fram en að ári. Ef það væri því óráðlegt að seinka rjettum nú um viku, vegna slæmrar veðráttu, þá væri óráðlegt að hafa þær svo seint að ári, og ætti því að flytja þær þá fram um eina viku.
Eftir því, sem jeg hefi litið til í svip, þá fara fjallgöngur í haust fram, þar sem jeg þekki til, 17. september, en ef till. okkar í landbúnaðarnefndinni væri samþ. og framkvæmd, færu þær fram 23. september, en að ári eiga þær að fara fram 22. september. Það mega því allir sjá, að tillaga þessi er í alla staði rjettmæt, og það er óheppilegt, að fjallgöngur hefjist fyr en þörf er á; það tefur menn frá heyskap, og eftir reynslu er það hið sama og að menn hætti þá heyafla sínum. Það verður ætíð lítið úr heyvinnu — og oftast ekkert — eftir fjallgöngur.
Það má vel vera, að orðalag tillögunnar mætti vera betra; það er ekkert aðalatriði; hitt er aðalatriði, að fjallgöngur byrji nú viku síðar en fjallskilareglugerðir mæla fyrir um; það er nauðsynjamál og svo sjálfsagt, að það á að gerast eins og hver önnur dýrtíðarráðstöfun, sem gerð er nú í tilefni af dýrtíð þeirri, er stríðið veldur.
Jeg hefi því ekkert á móti því, að tillagan sje tekin út af dagskrá nú, með því móti, að hún verði sett á dagskrá aftur á morgun, því að það er nauðsyn að hraða málinu sem mest.