28.08.1917
Neðri deild: 45. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 2267 í B-deild Alþingistíðinda. (2371)

168. mál, fjallgöngur og réttir

Þórarinn Jónsson:

Það hefir verið talað um það, að tíminn væri knappur til þess að koma þessu í kring, og er það rjett. Það er athugandi, að hlut eiga oft að máli fjarlæg hjeruð, sem þurfa að koma sjer saman. Þannig geta Húnvetningar og Skagfirðingar ekki hafið fjallgöngur um hálendið, nema Sunnlendingar vilji hefja þær samtímis. En samt sem áður held jeg, að ekki sje frágangssök að koma till. til framkvæmda.

Það er alveg rjett, sem háttv. þm. Stranda. (M. P.) sagði um saltleysið, að á mörgum höfnum mundi vanta salt um það leyti sem venjulegum fjallgöngum er lokið, og á þeim tíma, sem liði til slátrunarinnar, mundi fjeð leita frá og leggja af.

Mjer er ekki kunnugt um vilja kjósenda minna í þessu efni, en jeg veit það, að margir eru á því að seinka fjallgöngunum um þrjá daga, eins og háttv. þm. S.-Þ. (P. J.) segir vera komið á í Suður-Þingeyjarsýslu.

Jeg veit ekki, hvort sumir kunna að vilja færa tímann lengra, enda yrði það að vera komið undir samkomulagi milli Norðlendinga og Sunnlendinga. Um veður og heyskapartíð er engu hægt að spá, en eins vel er líklegt, að heyskapur geti haldið áfram þessa viku, og vegur þetta atriði mjög mikið, þótt ekki sje hægt að byggja á því út af fyrir sig.