15.09.1917
Sameinað þing: 7. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 2286 í B-deild Alþingistíðinda. (2390)
191. mál, milliþinganefnd til að íhuga fossamál landsins
Frsm. (Magnús Torfason):
Jeg ætla að segja að eins fáein orð út af nokkrum atriðum í ræðu háttv. 1. þm. Rang. (E. P.), sem jeg kemst ekki hjá að mótmæla.
Háttv. þm. (E. P.) vildi segja, að vel hefði mátt koma Sogsfossamálinu fram á þessu þingi. Jeg verð að mótmæla þessu fastlega. Í fyrsta lagi var það ókleift af því, að ekki lá neitt formlegt tilboð fyrir þinginu. Hjer var að eins um að ræða beiðni frá 4 mönnum, en ekki hægt að sjá, að neitt fjelag væri stofnað til þess að vinna þetta fossafl, og því síður að þingið fengi að sjá lög þess fjelagsskapar, þó að til hefðu verið. Þetta eitt var ærið nóg til þess, að ekkert vit hefði verið í að samþykkja lög á þessum grundvelli. Sá millivegur var að vísu hugsanlegur að vísa málinu til stjórnarinnar. En hv. 1. þm. Rang. (E. P.) hefir einmitt barist á móti, að sá vegur yrði farinn.
Þá sagði sami háttv. þm. (E. P.), að ef þingið hefði nú samþykt þetta frv., hefði blasað við mönnum atvinnubót. En jeg held, að þetta sjeu helberir hugarórar. Jeg fæ ekki sjeð, að nokkur tiltök hafi verið til að aðhafast neitt í bráðina, ekki einu sinni að leggja einn einasta jámbrautartein. Hið eina, sem hægt hefði verið að gera, var að undirbúa járnbrautarlagningu. En það hefði þó ekki verið hægt að vetrarlagi, enda var ekki ætlast til, að byrjað yrði á neinum verklegum framkvæmdum fyr en að ófriðnum loknum.