06.07.1917
Neðri deild: 4. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 11 í C-deild Alþingistíðinda. (2421)
20. mál, sala þjóðgarða, sala kirkjujarða
Sigurður Sigurðsson:
Þegar jeg heyrði þess getið, að stjórnin ætlaði sjer að hætta að selja þjóðjarðir, skildi jeg það svo, sem það boðaði stefnubreytingu í þessu máli. Nú sje jeg í aths. við frv., og heyrði auk þess á ræðu hæstv. forsætisráðherra (J. M.), að hjer er sjerstaklega farið fram á frestun, sökum óstöðugs peningaverðs. Hins vegar fanst mjer jeg þó geta lesið það milli línanna, að ráðuneytinu sjálfu mundi ekki á móti skapi að hætta sölu þjóðjarða og kirkjujarða fyrir fult og alt. Hefði jeg því getað vænst þess, að ráðuneytið tæki rögg á sig og legði fram frv., ekki um frestun á sölunni til 1919, heldur að henni yrði hætt í bráð og lengd.
Það er öllum vitanlegt, að skoðanir manna á máli þessu eru mjög skiftar. Því er ekki að leyna. En stöðugt mun þeim fara fjölgandi, er telja oflangt gengið í sölu þjóðjarða og kirkjujarða, og því sje nú mál að hætta að fullu og öllu. Það er langt síðan, að fyrst komu fram raddir um að hætta þessari sölu. Það mun hafa verið á þingunum 1893 og 1895. Þá komu inn á þingið ýmsir nýir menn, er töldu ekki rjett að halda áfram að selja þjóðjarðir,
t. d. þáverandi þm. Stranda., Guðjón Guðlaugsson, Jón frá Múla og meira að segja þáverandi og núverandi hv. þm. S.-Þ. (P. J.) og fleiri góðir menn. Síðan hafa þessar raddir oft látið til sín heyra, bæði utan þings og innan. Jeg ætla ekki nú að rekja ástæður okkar, sem viljum hætta sölunni; það væri endurtekning. Jeg skal að eins minnast á eina aðalástæðu þeirra, er fylgja sölunni, þá ástæðu, að með henni sje trygð sjálfsábúð á jörðum. Við hinir, sem erum á móti þjóðjarðasölunni, segjum þar á móti, að þessi sala tryggi ekki til frambúðar sjálfsábúð í landinu. Til þess að tryggja hana þyrfti sjerstök lög, og er þá hætt við, að mörgum fyndist með þeim gengið fullnærri persónulegu frelsi, sem menn eru svo viðkvæmir fyrir nú á dögum, eða jafnvel eignarrjettinum.
Teldi jeg því rjettast að hætta alveg sölu opinberra jarðeigna, og jafnvel að landið keypti þær jarðir, er gengið hafa úr sjálfsábúð. Það er ekki hægt að draga fjöður yfir það, að margir sem kaupa og keypt hafa opinberar jarðir, hafa gert það til að selja þær aftur öðrum og græða á þeim. Þessu til sönnunar mætti nefna dæmi, ekki að eins úr nágrenni Reykjavíkur, heldur og víðs vegar af landinu.
Hinu neita jeg ekki, að sumir hafa keypt jarðirnar til þess að bæta þær, og í þeirri óvissu von, að þær gengi til afkomenda sinna. Við, sem eldri erum, vitum, hvernig þetta hefir gengið. Það er ekki sjaldgæft, að menn hafi bætt jarðir sínar og bygt upp, en svo hefir ekkert barnanna getað eða viljað innleysa jörðina og búa á henni.
Jeg hafði vænst þess af þessu ráðuneyti, að það myndi stíga sporið að fullu, og ekki einungis leggja til, að sölu þessara jarða væri frestað til skamms tíma, heldur leggja fram frv. um að hætta sölunni algerlega, og um leið gerð ráðstöfun til þess jafnframt, að koma á öðru skipulagi um ábúðina á hinum opinberu eignum, þar sem kjör ábúenda væru bætt og ábúðin gerð þeim hagkvæmari.
Því er nú svo varið, þrátt fyrir það þó að tímarnir sjeu erfiðir, að mesti hörgull er á jörðum. Menn vilja reisa bú og eiga með sig sjálfir, engu síður en á dögum Nóa. Margir verða því að hröklast að sjónum. Því hefði verið ástæða til að athuga, hvort ekki væru til óseldar ýmsar þjóðjarðir og kirkjujarðir, er skifta mætti að skaðlausu í 2—3 ábúðir. Er jeg sannfærður um, að svo er. Meira að segja gæti það komið til mála að kaupa af einstökum mönnum lönd þau, sem ekki eru notuð. Mjer detta í hug tveir vestustu hrepparnir í Mýrasýslu. Þar eru landstórar jarðir, sem ekki eru notaðar til hálfs. Mjer þætti því rjett að athuga, hvort ekki væri ráðlegt, þrátt fyrir dýrtíðina, að kaupa lönd og undirbúa með framræslu og öðrum jarðabótum, á kostnað hins opinbera, og leigja síðan til ábúðar gegn hæfilegum vöxtum af kostnaði undirbúningsverksins.
Jeg nefndi þessa 2 hreppa vestur frá, en svona er það víðar, að margar jarðir eru ekki einu sinni hálfnotaðar. Menn eru að tala um að gera eitthvað fyrir landið og flýta fyrir ræktun þess. Jeg er viss um, að besta og sjálfsagðasta ráðið í þá átt er að hætta algerlega sölu þjóðjarða og kirkjujarða. Það hefir verið sagt, að þegar hafi verið seldar bestu jarðirnar. Það er að vísu satt, að ýmsar ágætar jarðir hafa verið seldar, en samt eru eftir enn margar góðar jarðir óseldar, einkum kirkjujarðir. Ráðlegast er því að láta nú staðar numið, en í stað þess gera ábúðina aðgengilegri og hlynna með því að ræktun landsins.