06.07.1917
Neðri deild: 4. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 19 í C-deild Alþingistíðinda. (2424)

20. mál, sala þjóðgarða, sala kirkjujarða

Sveinn Ólafsson:

Jeg skal ekki lengja umræður mikið, en get þó ekki látið málið ganga alveg fram hjá mjer afskiftalaust, með því að jeg er því nokkuð kunnugur, hefi um nokkurn tíma verið ráðunautur stjórnarinnar um þjóðjarðasölu í Austfirðingafjórðungi. Þetta finst mjer því veita mjer ástæðu til þess að leggja hjer orð í belg.

Jeg þóttist vita það, áður en jeg kom á fund, að ýmsir mundu hafa tilhneiging til þess að andmæla frestun á sölu þjóðjarða, og er það ekki óeðlilegt. 2 hina síðustu áratugi hefir það verið efst í vitund alls þorra manna, að rjett væri að selja þjóðjarðir í því augnamiði að efla sjálfsábúð í landinu. Það er nú á allra síðustu árum, að farið er að bera á efasemdum um rjettmæti þessara kenninga, og að gerðar eru tilraunir til þess að draga úr sölunni.

Auðvitað eru 2 hliðar á þessu máli, sem flestum öðrum, önnur björt, en hin dálítið dekkri. Þeir, sem hvetja til sölunnar, líta á björtu hliðina, hinir ef til vill meira á þá dekkri. Það er ekki hægt í stuttu máli að lýsa þessum hliðum ítarlega. En það hygg jeg þó, að muni flestum ljóst, að þessar jarðir eru ekki fremur trygðar til sjálfsábúðar en aðrar jarðir og haldast ekki betur í ættum. Einstakir menn, sem leggja kapp á að eignast fasteignir, hafa enn sömu skilyrði til að eignast seldar þjóðjarðir sem aðrar jarðir og geta gert sjer þær að fjeþúfu.

Afleiðingin gæti auðveldlega orðið sú, að einstakir menn eignuðust heil hjeruð, líkt og á miðöldunum, og væri þá ver farið en heima setið.

Hins vegar er til önnur leið til þess að tryggja það, sem menn óska í þessu efni; jeg á við erfðaleigu. Ef tryggilega er um búið, virðist mjer sem flest eða alt, sem menn óska eftir í þessu efni, vinnist með þeirri aðferð. Ábúendur fá takmarkalítinn rjett yfir jörðunum og láta niðjum sínum hann eftir. En ef notarjettur landseta til jarðar er vel trygður og niðjum hans rjetturinn til að njóta ávaxta af starfi hans á jörðinni, þá held jeg flest það fengið, sem ástæða er til að óska eftir, því að jörðina sjálfa flytur þó enginn inn í ókunna landið.

Jeg held þess vegna, að rjettmætt hefði verið að hefta alveg sölu þjóðjarða; tel jafnvel eigi hættulaust að halda henni áfram. Mjer finnast ástæður stjórnarinnar styðjast við góð rök, og sjálfsagt að ganga eigi fram hjá þeim. Það er ljóst, að nú vilja menn vegna verðfallsins kaupa jarðir, sem þeir vildu ekki áður kaupa; þetta er mjer persónulega kunnugt um af reynslu. Jeg hafði vænst þess, að stjórnin, jafnframt þessu frumvarpi, legði fyrir þingið lagafrumvarp um erfðaábúð. Það er að vísu eigi fram komið, en getur komið síðar, og komi það ekki á þessu þingi, stæði stjórninni næst að undirbúa það til næsta þings. Það er engin ástæða til að hafna fyrirliggjandi frumvarpi, þótt hitt sje eigi fram komið.

Mjer finst þetta ekki vera neitt landbúnaðarmál, nema þá mjög einhliða skoðað. Ef jeg ætti að ákveða heimilisfang þess, mundi jeg vísa því í allsherjarnefnd.