06.07.1917
Neðri deild: 4. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 26 í C-deild Alþingistíðinda. (2428)
20. mál, sala þjóðgarða, sala kirkjujarða
Sigurður Sigurðsson:
Jeg skal reyna að vera stuttorður. Hv. þm. Húnv. (Þór. J.) talaði um grasbýli og smábýli í sambandi við ræðu mína, og fanst mjer hann vilja leggja þann skilning í hana, að jeg vildi skifta stærri jörðum niður í grasbýli. Það er ekki mín skoðun, því að jeg álít, að af grasbýli í þrengstu merkingu geti enginn maður lifað, nema hann hafi einnig eitthvað annað við að styðjast. En hinu held jeg fram, að það sjeu margar jarðir, sem má skifta í tvent eða þrent að skaðlausu bæði fyrir landbúnaðinn, ábúandann og þjóðfjelagið í heild sinni. Það þýðir ekki að loka augunum fyrir því, að það eru fleiri eða færri jarðir í hverri sýslu, sem ekki eru fullsetnar. Auk þess eru aðrar jarðir, sem aldrei verða fullsetnar, nema með afarmiklum tilkostnaði. Og þeim jörðum á að skifta í tvær eða fleiri ábúðir, og reisa nýja bæi, svo að slíkar jarðir verði brúkaðar til fulls.
Og enn vil jeg benda á það, að margir bændur hafa ekkert að gera með allar jarðir sínar, og sjest það á því, að þeir heimila lausamönnum með fjölda fjár að vera á jörðinni, og sumir ráða til sín vinnumenn með 30, 40 eða jafnvel 100 fjár á fóðrum. (P. O.: Það gerir fólkseklan). Það er af því, að jörðin er ekki fullsetin, því að hvaða nauður ætli að ræki þá til þess að taka til sín lausamenn? Jeg man eftir einum lausamanni í Húnavatnssýslu, sem átti auk annars 30 hross. Ætli sú jörð hafi verið fullsetin af viðkomandi bónda? Þessum jörðum mætti skifta án þess að þröngva kosti þeirra, er á jörðunum búa. Hv. þm. N.-Þ. (B. Sv.) vildi halda því fram, að allar bestu jarðirnar væru þegar seldar. Það má ef til vill til sanns vegar færa með þjóðjarðirnar, en það er enn óseldur fjöldi af kirkjujörðum, sem ekki má selja, því að þær liggja sumar vel við skiftingu.
Í sumum hjeruðum gengur þetta svo langt, að menn eru nú í vandræðum með læknisbústað, því að allar opinberar jarðir eru seldar, og hjeraðið verður ef til vill að sæta afarkostum til þess að fá jörð handa lækninum. Jeg skal líka geta þess, út af því, sem sami hv. þm. sagði um hreppapólitík, að það er ekki rjett, sem hann sagði um það. Menn eru þvert á móti sumstaðar farnir að viðurkenna, að þjóðjarðasölunni beri að hætta. Á síðasta sýslufundi Árnessýslu var neitað sölu á 2 jörðum, af því að sala þjóðjarða og kirkjujarða var álitin óholl bæði fyrir sýslufjelagið og þjóðfjelagið.
Á þinginu í fyrra var til umræðu frv. til laga um frestun á framkvæmd laga um sölu þjóðjarða, en það var þá felt, og frv. til laga um forkaupsrjett landssjóðs var einnig felt, en ekki vísað til stjórnarinnar. Hv. 1. þm. Húnv. (Þór. J.) var að tala um, að þjóðjarðasölumálið hefði verið falið stjórninni til undirbúnings. Mig minnir, að ekki alls fyrir löngu — 1912 eða 1913 — hafi stjórninni verið falið að athuga erfðaleigu á þjóðjörðum, en það hefir hún til þessa látið undir höfuð leggjast. Hins vegar hefir nú háttv. 2. þm. S.-M. (B. St.) lýst yfir því, að hann hafi í hyggju að flytja á þessu þingi frv. til laga um erfðaleigu á þjóðjörðum. Það er að vísu virðingarvert af einstökum þingmönnum að ráðast í að flytja slíkt frumvarp. En jeg verð þó að álíta, að annað eins vandamál og þetta, og um leið nýmæli, sje ekki meðfæri einstakra þingmanna til flutnings, en tel það að sjálfsögðu vera verk stjórnarinnar. Jeg hefi líka litið svo á, að meðan sölu þjóðjarða er takmarkalítið haldið áfram, þá sje í rauninni þýðingarlaust að koma fram með frv. um ábúð á opinberum eignum. Fyrst verður að taka fyrir þessa óheillastefnu, en þá um leið er líka kominn tími til að setja lög um ábúð á jarðeignum hins opinbera.