06.07.1917
Neðri deild: 4. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 30 í C-deild Alþingistíðinda. (2430)

20. mál, sala þjóðgarða, sala kirkjujarða

Forsætisráðherra (J. M.):

Það hafa ýmsir háttv. þingmenn talað um, að það væri hart aðgöngu fyrir þá menn, sem varið hefðu mikilli fyrirhöfn og lagt í kostnað til að fá jarðir metnar, að fá svo ekki kaup á jörðunum. Það getur verið dálítið hæft í þessu. En ef þinginu sýndist svo, þá væri ekki annað en að borga það fje, sem varið hefir verið til að virða jarðirnar, af opinberum sjóði. Það er venjulega ekki annað, sem hefir þurft að borga. Jeg skal ekki segja neitt um, hvort menn hafi þurft að takast á hendur ferð til að tala við sýslunefndarmenn, en þótt svo væri, og kostnaður við það bættist við, þá er það líklega aldrei meira, sem lagt er út í peningum, en 10—15 kr., og sýnist ekki muna miklu, þótt sá kostnaður yrði endurgoldinn af opinberu fje.

Það hefir aðeins einn hv. þm. (B. Sv.) sagt, að það væri ekki rjett, sem stjórnin hefði borið fyrir sig, að þetta frumv. um að fresta sölu þjóðjarða um stundarsakir, væri komið fram vegna verðfalls peninga. En þó ber svo undarlega við, að við erum samdóma um það, að verð peninga sje nú mjög óvíst. Við erum líka sammála um, að eftir stríðið verði peningaverð enn um hríð mjög óvíst. Er það þó sannast mál, að um það kemur mönnum ekki saman. Margir ætla, að eftir stríðið haldi verðfallið áfram, og sýnist mjer því dálítil ástæða fyrir stjórnina til að koma fram með þetta frv.

Jeg skal aftur taka það fram, út af því, sem okkur háttv. 1. þm. Húnv. (Þór. J ) hefir greint á um, hvort mönnum, sem hafi verið búnir að fá loforð stjórnarinnar um kaup á ábýlisjörðum sínum, hafi síðar verið synjað kaupanna, að það hefir að minsta kosti ekki verið viljandi gert. Hitt hefir komið fyrir, að mönnum, sem ekki hafa notað kauploforð stjórnarinnar á þeim tíma, sem loforðið var bundið við, hefir verið neitað um kaupin, er þeir hafa leitað þeirra síðar. En þá hefir þeim jafnan verið gefinn kostur á að fá jarðirnar keyptar eftir endurvirðingu.

Hvað því viðvíkur, í hvaða nefnd þetta mál á að fara, þá sagði jeg í upphafi, að sjálfsagt væri, að það færi í landbúnaðarnefnd, og jeg verð enn að líta svo á. Í allsherjarnefnd finst mjer málið alls ekki eiga að fara. Ef nokkur efi leikur á því til hverrar fastanefndar eigi að vísa málinu, þá virðist mjer heldur vera vafi milli landbúnaðarnefndar og fjárhagsnefndar. En mjer virðist málið þó fremur eiga heima í landbúnaðarnefnd, því að ef þinginu dytti í hug að hætta sölu þjóðjarða, þá þyrftu að koma frá stjórninni einhver ákvæði, um erfðaábúð, eða önnur þau ákvæði, er trygðu ábúendum bætur fyrir kostnað, sem þeir hefðu lagt í til umbóta á jörðum. Jeg tel það engum efa undir orpið, að þetta mál sje best komið í landbúnaðarnefnd, jafnvel þótt búast megi við, að hún sje fremur mótfallin frv. en meðmælt. Jeg heyri nú, að þjóðjarðasölumálinu í Ed. hefir verið vísað til landbúnaðarnefndar þar, eins og eðlilegt hlýtur að vera eftir allri afstöðu.