20.07.1917
Neðri deild: 15. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 33 í C-deild Alþingistíðinda. (2433)

20. mál, sala þjóðgarða, sala kirkjujarða

Frsm. minni hl. (Sigurður Sigurðsson):

Það er með mig nú, eins og fyrri, að jeg hefi ekki getað orðið hv. samnefndarmönnum mínum samferða um þetta mál. Álit minni hlutans er stutt, og vísað þar til álits minni hluta landbúnaðarnefndarinnar frá 1915. Jeg vænti, að þeir, sem á öðru máli eru en jeg um þetta mál, hafi kynt sjer það, sem þar er sagt. En nú skal jeg leyfa mjer að bæta við örfáum orðum.

Það er ómótmælanlegt, að flestir bændur, sem hafa fengið keyptar ábýlisjarðir sínar, hafa komist að góðum kaupum á þeim, og sjest það best á því, að allir, sem selt hafa aftur jarðir sínar, hafa selt þær fyrir meira verð en þeir keyptu þær. Flestir stórgrætt á kaupunum. Hvaða rjettlæti sjá menn nú í þessu, að einstakir menn geti fengið eignir hins opinbera með gjafverði, en aðrir ekki, af því að þeir voru ekki svo heppnir að sitja á landssjóðseign? Þessum mönnum er beinlínis gefið fje, sem er eign allrar þjóðarinnar. Jeg fyrir mitt leyti sje enga ástæðu til að hlynna að einstökum mönnum á kostnað allrar þjóðarinnar. Það getur verið, að það vaki fyrir einstöku manni, að halda niðri verði jarðanna með þessu lága verði á landssjóðsjörðum, en þeim tilgangi er ekki náð og verður ekki náð með þessu. Jarðirnar eru alt af að stíga í verði og munu halda áfram að gera það. Og þótt einstöku jarðir hafi verið seldar hærra verði en góðu hófi gegnir, þá mun almenningsálitið vera það, að verð á jörðum sje síst ofhátt yfirleitt, og það er einnig mín skoðun. Það er mjög eðlilegt, að jarðirnar hækki í verði um leið og þær eru bættar.

Meiri hluti nefndarinnar, sem fjallaði um þetta mál, hefir komist að þeirri niðurstöðu, að rjett sje að fella frv. stjórnarinnar, og ástæðurnar eru þær aðallega, að sjálfsábúð á jörðum geri mennina betri og svo sje miklu betur búið á þeim jörðum, er sjeu í sjálfsábúð en á leiguliðajörðum.

Jeg verð nú að segja, að mjer þykir það nokkuð hæpin staðhæfing, að sjálfseignarbændur sjeu betri menn en aðrir yfir höfuð, eða að það geri mennina miklu betri, að þeir fái keyptar þjóðjarðir og kirkjujarðir við lágu verði; að minsta kosti hefi jeg aldrei heyrt þess getið fyr en nú. Um hitt, að sjálfseignarjarðir sjeu betur setnar en leigujarðir, má lengi deila, og að minsta kosti er það alveg órannsakað mál. Það liggja engar opinberar skýrslur fyrir um það. Sumir þykjast jafnvel hafa fundið það út, að munurinn sje mjög óverulegur, og einn maður, sem helst hefir kynt sjer það mál, fullyrðir, að munurinn sje svo að segja enginn. Þessi maður er Páll Zóphóníasson, kennari við búnaðarskólann á Hvanneyri. Einstök dæmi sanna líka þessa niðurstöðu í mýmörgum tilfellum. Það má nefna dæmi um það, að leiguliðar sitja sínar jarðir betur en sjálfseignarbændurnir í kringum þá. Það væri mjög fróðlegt að safna skýrslum um þetta efni, en á þeim skýrslum getur meiri hlutinn ekki hafa bygt, er hann skrifaði nál. sitt, því að þær skýrslur eru ekki til enn.

Hv. meiri hluti segir, að vafasamt sje, að smábýlabúskapur þrífist til sveita. Það má vel vera, að það sje vafasamt, en rjett væri að rannsaka það. Það er líka vafasamt, að stórbýlabúskapurinn þrífist nú betur en smábýlabúskapurinn, síðan vinnufólkseklan varð jafnmikil og vinnan svo dýr, sem raun er á. Einyrkinn er nú sumstaðar betur settur en stórbóndinn, sem fær ekki fólk til þess að vinna jörð sína. Vinnufólkseklan og dýrtíðin gerir

það að verkum, að erfitt er nú að búa á stóru jörðunum fólksfreku.

Mín tillaga í þessu máli er þá sú, að stjórnarfrv. sje samþ. Auðvitað þykir mjer það ganga ofskamt, því að jeg vil helst nema lögin um sölu þjóðjarða og kirkjujarða alveg úr gildi. Frumvarpið er þó spor í áttina, og tel jeg því rjett að samþykkja það.