20.07.1917
Neðri deild: 15. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 35 í C-deild Alþingistíðinda. (2434)
20. mál, sala þjóðgarða, sala kirkjujarða
Atvinnumálaráðherra (S. J.):
Jeg get ekki annað sagt en að mig furðar á, hvernig umræður hv. þingmanna falla um þetta mál. Menn haga hjer ræðum sínum eins og hjer væri um algert afnám laganna að ræða. En hjer er ekki um annað að ræða en stutta frestun á framkvæmd þeirra. Um grundvöll þjóðjarðasölulaganna vil jeg ekki ræða nú. Jeg gæti að vísu lagt orð í belg um það, hvernig lögin hafa reynst, en jeg sleppi því að þessu sinni, því að það mál er ekki hjer á dagskrá.
Í niðurlagi nefndarálits meiri hluta segir svo: „Má telja fult eins álitlegt, að hreppar eigi jarðir eins og landssjóður. Ef sveitarstjórnirnar væru vel á verði, þegar jarðir ganga kaupum og sölum, fjölgaði jarðeignum hreppanna. Væri þá að nokkru bætt úr göllum þjóðjarðasölunnar. Þannig mætti oft afstýra því, að jarðir yrðu eign útlendinga eða braskara. Getur samt verið, að nýrra laga þyrfti, sem girtu fyrir slíkt.“ — Ef nú þessir gallar eru á lögunum, eins og þau eru nú, og þá þarf að laga með nýjum lögum, væri þá ekki ráðlegt að fresta sölunni um tíma, svo að tími ynnist til að laga gallana? Ástæður landsstjórnarinnar fyrir frv. eru ekki langar, en þó vil jeg minna á eitt, sem þar er tekið fram, og það er það, að peningagildi er nú mjög á reiki, svo að ógerningur er að meta jarðir til peninga á þessum tímum, svo nokkuð sje að marka. Það liggja nú fyrir umsóknir um kaup á 56 kirkjujörðum og 36 þjóðjörðum. Á því geta menn sjeð, að hjer er ekki um neina smáræðisfúlgu að ræða. Því miður hefi jeg ekki enn haft tíma nje tækifæri til að leita mjer upplýsinga um, hve mikið er eftir af óseldum jörðum landssjóðs, en mun gera það við tækifæri.
En nú vil jeg spyrja hv. meiri hluta nefndarinnar: Hvað sjer hún hættulegt við að fresta sölunni til næsta reglulegs Alþingis? Jeg get ekkert sjeð á móti því. Hins vegar sje jeg marga kosti, sem það hefir. Setjum t. d. svo, að á þeim tíma hækkuðu jarðir í verði. Þá hefir málið einnig þjóðhagslega hlið. Sömuleiðis má benda á, að hjer liggur nú fyrir þessari hv. þingdeild frv. til laga um erfðaábúð. Mjer þykir auðsætt, að sjálfsagt sje að taka ábúðarlögin til rækilegrar íhugunar og gera það áður en ákveðið er, hvort selja skuli jarðir framvegis eða ekki. Jeg vona, að tími vinnist til að athuga slíka löggjöf nákvæmlega fyrir næsta reglulegt Alþingi. Enn fremur mælir það með frestun laganna, að fyrir 1919 verða komnar fram virðingargerðir fasteignamatsnefndanna, og mun þar mega fá nokkurn stuðning, þegar loks skal ákveða, hvað hæfilegt söluverð jarðanna sje. Á einum þingmálafundi, sem jeg var á í síðastliðnum mánuði, var fallist á að fresta sölu opinberra þjóðeigna þangað til búið væri að fullgera fasteignamatið. Þótt tæplega sje að búast við því, að samræmi verði í matinu fyrir alt landið, þá verður þó að minsta kosti samræmi innan hvers hjeraðs, að öllum líkindum. Að endingu má líka taka það fram, að eins og nú er háttað sölu á þjóðjörðum, þá má heita svo, að hagur þjóðarinnar sje þar á móti hag einstakra manna. Því hefir verið haldið fram sem meðmælum með sölunni, að ábúðarfestan mundi minka ef jarðirnar væru seldar. En þetta er ekki nægil. rannsakað og því eiginl. sagt út í bláinn. Einmitt á þessu atriði veltur þó svo afarmikið. Mín þekking á þessu atriði bendir ekki til þess, að ábúðarfestan aukist við sölu opinberra jarðeigna enn; eins og kunnugt er er annars skylt að byggja til lífstíðar.
Meðan því engin rök eru færð fram fyrir því, að þjóðarbúinu eða einstökum búendum sje órjettur ger með frumv., nje af því hljóti að leiða nein fjárhagsleg óþægindi, verð jeg að halda því fast fram, að þessi háttvirta deild eigi fyrir sitt leyti að samþykkja það.