20.07.1917
Neðri deild: 15. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 49 í C-deild Alþingistíðinda. (2440)
20. mál, sala þjóðgarða, sala kirkjujarða
Frsm. meirl hl. (Jón Jónsson):
Hv. 1. þm. Árn. (S. S.) sagði, að jarðirnar væru óhæfilega lágt seldar. Getur verið, að svo sje, en þá verð jeg að telja það stjórnarinnar sök. Hún hefir óbundnar hendur, og getur breytt verðinu eftir því, sem hún telur rjett. Sje þetta ekki gert sem skyldi, ber stjórnin sökina. Jeg tel ekki heldur rjett að hneykslast á því, þótt einstakir menn græði á jarðakaupum. Það er gróði alls landsins, og hægt að ná sjer niðri á þeim mönnum með hærri sköttum til hins opinbera. (Atvinnumálaráðh.: Vill þingmaðurinn færa þessa setningu til allra viðskiftagreina þjóðfjelagsins?) Það er annað mál.
Jeg sje ekki, að hjer sje nein hætta á ferðum. Því að þótt hv. 1. þm. S.-M. (Sv. Ó.) segði, að söluverðið væri miðað við eftirgjaldið, þá getur stjórnin farið eftir hvaða reglu sem hún vill, ef hún vill kynna sjer, hvers virði jarðirnar eru, t. d. fengið sjer upplýsingar hjá þeim mönnum, sem kunnugastir eru.
Háttv. 1. þm. Árn. (S. S.) hjelt því fram, að þær jarðir, sem eru í sjálfsábúð, væru ekki betur setnar yfirleitt. Bar hann fyrir sig, sínu máli til stuðnings, ritgerð eftir mann, sem um þetta efni hefir ritað, Pál Zóphóníasson. Jeg efast ekki um, að staðhæfing þessi sje bygð á einhverri reynslu, því að sjálfsagt getur reynsla manna verið misjöfn. En hvað, sem um það má segja, þá verðum við að halda við okkar eigin reynslu, þótt hún fari í gagnstæða átt. Í því efni verður hver að hafa sína skoðun. Jeg veit það og skal fúslega viðurkenna, að sumar leigujarðir eru prýðisvel setnar. En það er ekki aðalreglan. Langalgengast mun það vera, að góður búskapur, húsabætur og jarðabætur sjáist á jörðum sjálfseignarbænda, eins og meiri hluti nefndarinnar heldur fram Það er aðalreglan, hvað sem hver segir.
Hæstv. atvinnumálaráðh. þótti aðferð nefndarinnar einkennileg. Lýsti hann yfir því að það væri ekki tilgangur stjórnarinnar að hætta þjóðjarðasölu fyrir fult og alt. En líklegt þykir mjer, að það búi undir, þótt að eins sje farið fram á frestun að þessu sinni. Jeg get ekki heldur annað en litið svo á, að það sje blátt áfram skylda landsstjórnarinnar að selja þjóðjarðir eða kirkjujarðir, hve nær sem um það er sótt og hlutaðeigandi sýslunefnd mælir með sölunni. — Mál þetta hefir hvað eftir annað komið til umræðu hjer í þinginu, og ávalt hefir meiri hluti þingmanna verið með sölunni. Stjórnin verður að taka tillit til þess.
Jeg skal játa það, að nokkuð mælir með því, að sölu jarðanna sje frestað nú, meðan jarðamatið nýja er á leiðinni, þar sem hugsanlegt er, að verðlag jarðanna breytist eitthvað við það. En það er ekki nægileg ástæða til að koma allri þjóðjarðasölu fyrir kattarnef, eins og virðist vaka fyrir stjórninni.
Þá drap hæstv. atvinnumálaráðherra enn fremur á það, að ekki væri rjett að halda þjóðjarðasölunni áfram fyr en ábúðarspursmálið væri leyst á einhvern hátt. Það er alveg rjett, að brýna nauðsyn ber til þess að ráða fram úr þessu máli. Jeg veit ekki, hvort landbúnaðarnefndinni vinst tími til að taka það mál til svo rækilegrar meðferðar, að hún sjái sjer fært að koma fram með það í frumvarpsformi á þessu þingi. Enda varla ráðlegt að ráða því máli til lykta, án þess að leita undirtekta þjóðarinnar áður. Það er alveg óhæfa að hafa ábúðarlögin eins og þau eru. Þau eru hreinasta hneyksli og þjóðinni til stórrar minkunar. Verður því aldrei ofmikil áhersla á það lögð, hvílíka nauðsyn ber til þess að leiða lögin um ábúð leigujarða í rjetta átt. En hversu vel sem frá því verður gengið, þá kemst ábúðarlöggjöfin aldrei í það horf, að leiguliðaábúðin jafnist á við sjálfsábúð. Maðurinn, sem býr á sinni eigin jörð, verður altaf ánægðari, hefir meiri kraft og hvöt til að gera jörðinni gott en leiguliðinn getur haft. Það er því sjálfsagt að stuðla að því, að sjálfsábúðum fjölgi.
Háttv. 1. þm. S.-M. (Sv. Ó.) er á móti þjóðjarðasölunni. Mig getur ekki á neinn hátt furðað á því, að hann vilji reyna að halda í aurana, sem hann fær í umboðslaun. Hann er umboðsmaður landssjóðsjarða, og sjer sjer því engan óhag í því, að sölu þeirra sje hætt. Hann sagði vafasamt, hvort þjóðin óskaði þess, að þjóðjarðasölunni væri haldið áfram. Jeg segi það óhikað, að allur fjöldinn vill, að jarðirnar sjeu seldar. Hitt eru að eins einstaka menn, sem því eru mótfallnir. Satt að segja hjelt jeg, að þingmenn utan af landi þektu svo vilja manna í þessu efni, að um það þyrfti ekki að deila.
Þá hneykslaðist háttv. þm. á ummælum þeim í nefndarálitinu, er víkja að starfi umboðsmanna. En býsna mörg dæmi mætti nefna þeim orðum til stuðnings. Það sje fjarri mjer að drótta því að hv. 1. þm. S.-M. (Sv. Ó.), að hann standi ekki vel í stöðu sinni, og yfirleitt mun óþarfi að gefa umboðsmönnunum að sök, þótt eftirlitið sje ekki eins fulkomið og þörf er á. Það er erfitt verk, þar sem jarðir liggja dreift, að hafa eftirlit með því, hvernig þær eru setnar. Er varla hægt að ætlast til, að menn, sem hafa og verða að hafa umboðsstarfið fyrir aukastarf, geti rækt það sem skyldi. Þeir koma sjaldan á jarðirnar, og vita lítið um, hvort ábúendur vinna það að jarðabótum, sem af þeim er krafist. Óþekt mun það ekki heldur, að einstöku umboðsmenn sjái í gegnum fingur með sumum ábúendum. — Háttv. þm. nefndi dæmi úr Fljótsdal um vel setnar jarðir í umdæmi hans. Upplýsingar hans eru eflaust rjettar. En hitt er mjer líka kunnugt um, að hlutaðeigandi ábúendur vilja fá jarðir sínar keyptar. Það veit jeg að minsta kosti fyrir víst um bóndann á Hrafnkelsstöðum, og svo mun vera um fleiri.
Hvað viðvíkur atriði því, sem hv. 1. Reykv. (J. B.) lagði mesta áherslu á, að hættulegt væri ef einstakir menn sölsuðu undir sig margar jarðir, legðu hjáleigur undir höfuðbólin og ljetu jarðeignir ganga kaupum og sölum, þá skal jeg fúslega játa, að þessu þarf að afstýra á einhvern hátt. En sjálfsagt má afstýra því með öðru móti en því að hætta þjóðjarðasölunni, og eins er það líka víst, að slíkt jarðabrask getur átt sjer stað eftir sem áður, ef ekki er gripið til annara ráða. En út í það skal ekki farið hjer.
Jeg hefi þá tekið fyrir helstu ástæður þeirra þingmanna, er reynt hafa að hrekja álit meiri hluta nefndarinnar, og verð jeg að álíta, að nefndarálitið standi óhrakið. — Lengi má deila um það, hve æskilegur smábýlabúskapurinn er. Og hvað skiftingu jarðanna viðvíkur, þá er ekki sjeð, að mjög ilt yrði að semja við jarðeigendur fyrir þá, sem setjast vildi að í sveit og fá sjer horn til að búa á.