13.08.1917
Neðri deild: 32. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 67 í C-deild Alþingistíðinda. (2452)

143. mál, verðhækkunartollur

Bjarni Jónsson:

Kann ske jeg innleiði umræður um frv. þetta fyrir stjórnarinnar hönd. Jeg sje, mjer til mikillar undrunar, að hjer er komið frv. um að framlengja toll, sem aldrei hefði átt að verða til og það af mörgum ástæðum, sem jeg hefi oft talið upp hjer í þessari hv. deild, en sjerstaklega þó þeirri, að þegar það verðlag, sem hefir veitt gróða af framleiðslu, breyttist svo í hlutfalli við framleiðslukostnað, að tap hlaut að verða á framleiðslunni, þá hvarf sá grundvöllur, er þótti fundinn lögleyfðu ráni af tveim stjettum landsmanna. Jeg sje, að í þessu nýja frv. eru nýjar tölur, en það heldur sjer þó á sama stigi mannvits sem hið fyrra, því að það talar um toll af verðhækkun, en ekki af ágóða af framleiðslunni. Ef svo væri, mætti gera úr þessu gróðaskatt, sem gengi alment yfir, en með þessu móti er ekki hægt að breyta frv. svo, því að það er bygt á hugsunarskekkju, hugsunarvillu, því að samkvæmt því á að leggja á verðhækkun, án þess að taka tillit til, þótt kostnaðurinn sje hærri en söluverð, og án þess að gera grein fyrir, hvort framleiðslan þolir skatta.

Jeg er nú ekki svo grimmur, að jeg kæri mig um að drepa þetta frv. þegar við 1. umr., en jeg treysti hv. fjárhagsnefnd, sem sennilega fær það til meðferðar, til að láta það fá hægan dauðdaga.