13.08.1917
Neðri deild: 32. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 70 í C-deild Alþingistíðinda. (2454)

143. mál, verðhækkunartollur

Magnús Pjetursson:

Jeg verð að taka undir með hv. þm. Dala. (B. J.), að jeg varð dálítið hissa, er jeg sá þetta frv., sjerstaklega af því, að það hefir áður heyrst á mörgum hjer í hv. deild, að þeim er ekki ljúft, að verðhækkunartollurinn verði framlengdur, og auk þess hefir hv. fjárhagsnefnd látið í ljós, að hún væri tollinum mótfallin. Þótt jeg yrði töluvert hissa, er jeg heyrði nefnt, að þetta frv. væri á leiðinni, varð eg samt enn meir hissa, þegar jeg las það og tölur þær, sem í því eru. Jeg held, að það hafi altaf verið álit þingsins, að verðhækkunartollurinn ætti að vera bygður á gróða, og jeg vil því beina því til stjórnarinnar, hvort hún álítur ekki framleiðslukostnaðinn hafa aukist tiltölulega meira en skattfrjálsa verðið hefir verið fært upp með þessu frv. Jeg býst við, að því verði ekki neitað, að sá verðhækkunartollur, sem hjer er farið fram á, er ekki lagður á gróða. Jeg skal nefna eitt dæmi. Hjer er gjaldfrjálsa verðið á síld 22 kr. á tn. Eftir því sem kunnugir menn segja mjer kosta bara umbúðirnar um síldina 22 kr., og menn geta hugsað sjer, hvort framleiðslukostnaðurinn muni ekki vera ofurlítið meiri. Jeg verð fyrir mitt leyti, af því að jeg var með verðhækkunartollinum 1915, að mótmæla því, að jeg sje ekki sama sinnis og þá, þótt jeg sje nú á móti þessu frv. Verðhækkunartollurinn, sem samþyktur var 1915,

átti eingöngu að vera skattur af nettó- gróða. Jeg gat ekki skilið það hjá hæstv. fjármálaráðh. (B. K.), hvernig hæstv. stjórn hefir hækkað hámarkið á tollfrjálsu vörunum í samræmi við bresku samningana; jeg get ekki sjeð, hvernig það hefir verið gert, saman borið við lögin 1915. Stjórnin játaði, að ef til vill mætti nema verðhækkun framan af orðinu og nefna þetta bara toll, og væri óneitanlega dálítið meira vit í því, því að um verðhækkunartoll er ekki lengur að ræða. Það er rjett hjá hæstv. fjármálaráðh., að það er ekki spurt um hag eða skaða, þegar um venjulegan toll er að ræða, en verðhækkunartollur er eingöngu gróðatollur, og því verður að spyrja, hvort gróði sje fyrir hendi.

Jeg verð að segja það, að jeg er dálítið grimmari en hv. þm. Dala. (B. J.), því að mjer finst algerlega óviðeigandi, að þetta frv. fari lengra en til 1. umr., meðal annars vegna þess, að gjaldfrjálsa verðið yrði að vera svo hátt, að um engar tekjur væri lengur að ræða fyrir landssjóð, ef setja ætti tollmarkið eftir framleiðslukostnaði. Jeg skil ekki heldur í, að það sje neitt unnið við að vísa málinu til þeirrar nefndar, sem hefir þegar lýst yfir því, að hún væri á móti því. Hvor aðferðin, sem höfð er, er dauðadómur. Hitt gæti jeg skilið, að vísa því til einhverrar annarar nefndar, t. d. bjargráðanefndar, af því að maður þekkir álit fjárhagsnefndar, sem hlýtur að ganga móti málinu. Að lokum vil jeg svo beina þeirri spurningu til hæstv. stjórnar, hvort hún telji þetta mál svo þýðingarmikið, að hún gerði það að fráfararefni, ef það yrði felt.