05.09.1917
Neðri deild: 52. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 93 í C-deild Alþingistíðinda. (2474)

143. mál, verðhækkunartollur

Frsm. (Magnús Guðmundsson):

Mjer er kunnugt um það, að von er á brtt. við þetta frv., og óska því, að það sje tekið út af dagskrá. Annars tók jeg það fram við 2. umr., að nefndin ætlar ekki að koma með brtt. við frv., enda er ekki við því að búast þar sem nefndin vill málið feigt. En eigi málið fram að ganga, þarf að vísa því aftur til nefndarinnar til lagfæringar. Jeg tek það fram, að mjer er kunnugt um, að hv. þm. S.-Þ. (P. J.) ætlar að koma með brtt. við það.