10.09.1917
Neðri deild: 56. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 94 í C-deild Alþingistíðinda. (2476)
143. mál, verðhækkunartollur
Frsm. (Magnús Guðmundsson):
Eins og hv. deildarmenn muna, var þessu frv. vísað aftur til nefndar, ekki af því, að hún hefði ekki athugað frv. heldur vegna breytinga, er menn æsktu á því. Þetta var nefndinni ekki ljúft verk, með því að hún hefir verið á móti frv. frá upphafi, og er enn.
Nú eru komnar fram brtt. frá hv. þm. S.-Þ. (P. J.) og hv. 1. þm. Reykv. (J. B.). Um þær er það að segja, að nefndin er á móti þeim, eins og frv. í heild sinni. Yfirleitt miða þær víðast að því að færa upp hámarkið, og það svo mjög, að vafasamt er, að nokkrar tekjur mundu af því fást. Þar er farið fram á að tolla ullina, en verðið sýnist mjer ofhátt sett, saman borið við kjötverðið. Mjer þykir líka undarlegt að hækka hámarksverðið á gærum; kg. hefir hingað til ekki náð kr. 1,00. Sama er að segja um smjör. Yfirleitt er nefndin andvíg brtt., nema ef til vill brtt. um síldartollinn.
Um brtt. hv. 1. þm. Árn. (S. S.), á þgskj. 780, skal jeg ekkert segja, fyr en hann hefir sjálfur mælt með þeim, en trúað gæti jeg því, að hv. sessunaut hans (M. Ó.) þætti fullmikil landbúnaðarlykt af þeim. Sem sagt, nefndin leggur til, eins og áður, að frv. verði felt.