09.07.1917
Neðri deild: 6. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 114 í C-deild Alþingistíðinda. (2488)

31. mál, nauðsynjavörur undir verði

Matthías Ólafsson:

Jeg verð að vera á líku máli og hv. þm. Dala. (B. J.), að þetta frv. mundi verða óframkvæmanlegt, með því fyrirkomulagi, er það hefir að flytja. Vilji hv. flm. er góður, og nauðsynjamál liggur að baki frv., en eins og það liggur fyrir er það alveg óframkvæmanlegt. Jeg skal ekki lengja umr., en vil taka það fram, sem jeg álít tiltækilegt. Það er, að landið taki stórlán, sem enginn vafi er á, að myndi velta á miljónum, og láni síðan sveitarfjelögum úti um land. En að af því yrði ekki krafist lagalega nema nokkurs hluta. Auðvitað sýni hver einstakur drengskap sinn í að borga eins mikið og hann getur. Menn fái lánaðar vörur, og borgi aftur, þeir er geta, sem næst „normal“ verði, og af hinu eftir getu og vilja. Með þessu móti yrði komist hjá að aðskilja sauðina frá höfrunum, og er það mikill kostur, því að það hefði mikinn kostnað í för með sjer. Jeg giska á, að menn hafi margar mótbárur gegn þessu. Menn myndu reyna að hliðra sjer hjá að borga, reyna að taka sem mest út o. s. frv. Jeg hafði hugsað mjer, að setja mætti takmörk fyrir því, að menn gætu fengið vörur fram yfir það, sem nauðsyn krefði. Þetta er einungis bending, sem jeg vildi skjóta fram, og skal jeg geta þess, að þessi hugmynd er ekki fyllilega frá mjer, heldur öðrum hv. þm., sem ekki á kost á að koma fram með hana í þessari hv. deild.