20.08.1917
Neðri deild: 38. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 136 í C-deild Alþingistíðinda. (2497)

31. mál, nauðsynjavörur undir verði

Atvinnumálaráðherra (S. J.):

Jeg bið ekki um orðið til að lýsa afstöðu stjórnarinnar til þessa máls, heldur að eins til að láta í ljós, hvernig jeg skil það, og hvernig mjer sýnist vænlegast að samrýma þær ýmsu skoðanir, sem hjer hafa komið fram.

Það er sameiginlegt öllum þessum tillögum, sem hjer liggja fyrir, að þær vilja bæta úr neyð þeirri, sem búist er við að yfir vofi. Meiri hlutinn telur það best mega verða með því að sjá mönnum fyrir lánum, og með auknum atvinnufyrirtækjum. Minni hlutanum líst sá vegur vænlegastur að gefa almenningi kost á helstu lífsnauðsynjavörum með lækkuðu verði, en hallast þó líka að því, að landsstjórnin og sveitarfjelög og bæjar sjái mönnum fyrir vinnu og lánveitingum.

Þá kemur loks frv. hv. þm. V.-Sk. (G. Sv.), sem leggur til, að þeim sje veittur óafturkræfur styrkur, sem styrkþurfar eru. Þetta frv. er einfaldast og minstum örðugleikum bundið til framkvæmda, ef nægilegt fje er fyrir hendi. En jeg hygg, að það muni hafa svo mikil fjárútlát í för með sjer, að nauðsynlegt sje þá að undirbúa þegar, að stjórnin hafi nægilegu fje yfir að ráða. Það hefir verið sagt, að bankarnir muni geta lánað fjeð, en þeir eru ekki ótæmandi uppspretta, og sá brunnur getur orðið þurausinn áður en varir, sje ekki á einn eða annan veg sett undir lekann í tíma. Það er mjög tvísýnt, að landsstjórnin geti útvegað alt það fje, sem þarf til að bæta úr neyð þeirri, sem yfir getur dunið, enda tvísýnt, hve heppilegt er, að hún sje ein um það. Hitt mun verða affærasælast, að samvinna sje í þessu efni milli sveitar- og bæjarfjelaga, sýslufjelaga og landsstjórnar, og að hvert sveitar- og bæjarfjelag styðji fyrst og fremst styrkþurfendur sína, leiti síðan til sýslufjelagsins, þar sem máttur þess þrýtur, og sýslufjelagið á sama hátt til landsstjórnarinnar.

Jeg hygg, að ekki þurfi að verða mikil brögð að því, að hjálpin komi ofseint, hverri tillögunni sem fylgt er. Nú eru allmiklar vörubirgðir fyrirliggjandi í landinu, bæði hjá kaupmönnum og landsstjórninni, og eftir síðustu fregnum eru góðar vonir um, að hægt verði að bæta fyrst um sinn í skarðið, fyrir það sem eyðist. Þessar vörur verða sjálfsagt dreifðar nokkuð út um landið, og því hægt með stuttum fyrirvara að grípa til þeirra, er full samvinna hefir tekist milli sveitarfjelaga og sýslufjelaga og landsstjórnar.

En höfuðatriðið í hverri tillögunni sem fylgt er er, að fje sje fyrir hendi til að grípa til.

Um atvinnuhjálpina er það að segja, að það er sjálfsagt ætlast til að veita þá atvinnu, sem útheimtir sem allra minst þarf með af útlendu efni.

Verðlækkun á helstu lífsnauðsynjum hefir mikið til síns máls; en hvorki hv. þm. Dala. (B. J.) nje aðrir geta gert nema afarlauslega áætlun um það, hvort þessar tvær miljónir, sem þeir tilnefna, muni vera nokkuð nærri lagi eða ekki, og væri gott, að það væri tekið til nánari athugunar til 3. umr. (B. J.: Við tillögumenn höfum gert allnákvæma áætlun um, hvað þurfa mundi til að fullnægja tillögum okkar, og á henni bygðum við, er við nefndum 2 miljónir). Jeg hefi hvergi sjeð þessa áætlun. (B. J.: Það láðist að taka hana inn í greinargerð frv., en hún getur sjálfsagt verið til sýnis þeim er vilja). Enn er eins að gæta. Eins og orðum er hagað í frv. gæti verið um það að ræða, að verðlækkunin ætti að ná aftur fyrir sig, alt til byrjunar styrjaldarinnar. Tillögur hv. minni hluta eru því í sumu óljósar, og munu reynast einna örðugastar í vöfum, þegar til framkvæmda kemur. Þegar alt er tekið til greina, mun verða einna auðveldast fyrir stjórnina að hallast að tillögum meiri hlutans; en má vera, eins og jeg sagði þegar í upphafi, að hægt sje að miðla málum og leiða saman skoðanir, því að hvert frv. um sig hefir sína kosti og ókosti. Það gæti t. d. komið til greina, að veitt væri einhver hlutfallsleg uppgjöf á greiðslu styrks þess, sem mönnum er veittur á þessum ógnatímum.