20.08.1917
Neðri deild: 38. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 151 í C-deild Alþingistíðinda. (2503)
31. mál, nauðsynjavörur undir verði
Gísli Sveinsson:
Það hefir komið fram, að í öllum þeim leiðum til bjargráða, sem nefndar hafa verið, geti verið um „gjöf“ að ræða frá landssjóði. Það, sem athuga þarf, er það, hvernig gjöfin komi best að haldi. Það hefir verið játað, að þótt sú leið verði ekki farin, sem jeg bendi á, heldur önnur hvor hinna, þá geti að því rekið að styrkja verði einstöku menn. Talað hefir verið um það, að það taki langan tíma að afgreiða hjálpina eftir sumum tillögunum. En það hlýtur altaf að taka langan tíma eins þótt farið sje eftir þeim tillögum, sem lengst ganga. Eftir tillögum minni hluta bjargráðanefndar kemur hjálpin misjafnt niður og mundi að miklu leyti lenda hjá þeim, sem síður verðskulda hjálp eða þurfa á henni að halda. Jeg tel ókleift að ná aftur með skatti því, sem menn fengju óverðskuldað, við það að landssjóður greiddi verðhækkunina. Það vita allir, að ekki þykir auðhlaupið að því, að ná rjettlátum skatti af venjulegum tekjum, því að tekjur aukast ekki altaf á sama hátt og framleiðslan, og ólíklegt er hins vegar, að allir kæmust upp á það að telja sparnað þann, sem þeir hefðu af verðhækkunargreiðslu landssjóðs, með tekjum sínum. Alt kapp verður að leggja á það að geta komið þar til hjálpar, sem þörfin er fyrir, og annarsstaðar ekki, því að allir hljóta að verða sammála um það, að allir verði að bjarga sjer sjálfir, sem eitthvað geta. Háttv. 2. þm. N.-M. (Þorst. J.) þarf jeg ekki að svara viðvíkjandi ummælum hans út af fyrri ræðu minni. Hann fór þar með rangt mál, eins og jeg reyndar gat búist við af honum. Annars finst mjer ekki sem best samræmi í því hjá honum, er hann treystir ekki sveitarstjórnunum til að gefa landsstjórninni vottorð um, hverjir sjeu styrkþurfar, en ætlast þó til, eins og meiri hluti bjargráðanefndar fer fram á, að sveitarstjórnirnar hafi alla dýrtíðarhjálp í höndum. Mjer er ekki ljóst, hvernig slíkt getur komið heim og saman.