10.07.1917
Neðri deild: 7. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 153 í C-deild Alþingistíðinda. (2509)

33. mál, Hólshérað

Flm. (Skúli Thoroddsen):

Jeg get ekki sjeð á ræðu hins hv. þm. N.-M. (J. J.), hvort hann er mótsnúinn þessu frv. eða ekki. Sje frv. mitt rjett og sanngjarnt, nær það fram að ganga, og mun jeg verða hlyntur hans frv., ef jeg hygg það rjett og sanngjarnt.

Mjer virtist í orðum hins hv. þm. liggja hótun til deildarinnar, að ef hún samþ. frv. um eitthvað, skyldi hann koma fram með frv. um þetta og þetta.

Að öðru leyti er ekki ástæða til að svara hinum hv. þm„ sjerstaklega þar sem hann færði engin rök móti ástæðum mínum.