09.07.1917
Neðri deild: 6. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 174 í C-deild Alþingistíðinda. (2533)
36. mál, verðhækkunartollur
Einar Arnórsson:
Örstutt aths. Hv. þm. V.-Sk. (G. Sv.) virtist ganga út frá því, að bændur bæri brýn nauðsyn til að selja ull sína strax, en sama væri ekki að segja um afurðir sjávarútvegsmanna. Því máli er svo farið, að bændur verða flestir að selja ull sína þegar á lestum og nota tekjurnar strax til innkaups á nauðsynjavörum handa heimilum sínum. En svipað er ástatt með sjávarframleiðendur. Lánstraust þeirra er takmarkað. Þeir verða margir að selja vörur sínar fyrirfram í byrjun vertíðar fyrir vörur til útgerðarinnar, salt og veiðarfæri. Þeir geta ekki legið með afla sinn, en verða að borga lánardrotnum sínum, bönkum og sparisjóðum.