12.07.1917
Neðri deild: 8. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 179 í C-deild Alþingistíðinda. (2540)
36. mál, verðhækkunartollur
Einar Jónsson:
Við 1. umr. tók enginn, sem ull átti, til máls. En nú fer jeg af stað. í sjálfu sjer er mjer ekkert kappsmál, hvort verðhækkunartollurinn á ull helst eða fellur burt, en þó er jeg þakklátur hv. þm. V.-Sk. (G. Sv.), að hann kom fram með þetta frv. Það sýnir ótvírætt, að hann sje þm. fyrir sveitakjördæmi.
Landssjóð munar þetta mjög litlu, ekki nema um eitthvað 8 þús. kr. að ræða, og verður þó minna í ár en í fyrra. En það er stór og veigamikil ástæða fyrir frv., að tollurinn myndi lenda í vasa milliliðanna ef hann hjeldist, en hvorki ullarframleiðendur nje landssjóður njóta góðs af.
Jeg get ekki látið hjá líða að minnast á framkomu hv. þm. V.-Ísf. (M. Ó.). Það er einkennilegt, hvernig hann hegðar sjer. Það lítur út fyrir, að ekki megi nefna landbúnað á nafn, án þess að hann fari að verja sjávarútveginn, þó að ekkert hafi verið á hann ráðist. Hann hefir viðhaft orð, sem hvorki honum nje sjómannastjettinni er sómi að. Þau lýsa óskammfeilni eða öfund — má ske hvoru tveggja. — Dettur nokkrum í hug, að hægt sje að framleiða ull án tilkostnaðar? Hann taldi ullarframleiðslu kostnaðarlausa þar sem fje gengur úti, en því fer fjarri, að nokkuð sje hæft í því. Eigur bænda væru í stórhættu, ef ekki væri haft eftirlit með fjenu. Jafnvel hv. þm. V.-Ísf. (M. Ó.) hlýtur að vita, að fjeð kostar bændur æði mikið, þótt það gangi úti.
Varla er hægt að bera saman, hvort sje kostnaðarmeira, landbúnaðurinn eða sjávarútvegurinn, framleiðsla á ull eða fiski. Þótt meira fje sje lagt í sjávarútveginn, grípur hann örar upp ágóðann. Á útveginum geta menn grætt þúsundir króna á einum degi, en við bændurnir verðum að draga saman efni á mörgum árum. Þess vegna er örðugt um allan samanburð, og af þessari ástæðu er ekki nema eðlilegt, að meira sje greitt af sjávarútvegi en landbúnaði í landssjóð. Jeg vil ekki gefa mig í þrætur um, hvor atvinnugreinin sje arðmeiri, þegar á alt er litið, en það hljóta allir að sjá, að landbúnaðurinn er miklu seintækari.
Í fám orðum, jeg legg eigi kapp á mál þetta, en álít þó sanngjarnt, að frv. verði samþ. En jeg álít ekki ráðlegt, að verðhækkunartollurinn sje að öllu leyti feldur burt, án þess að sjeð sje fyrir því áður hvernig hægt væri að bæta landssjóði tekjumissinn.