12.07.1917
Neðri deild: 8. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 181 í C-deild Alþingistíðinda. (2542)

36. mál, verðhækkunartollur

Jörundur Brynjólfsson:

Þegar þetta mál var til 1. umr. hjer í deildinni, ljet jeg það hlutlaust og greiddi. atkv. með því að vísa því til fjárhagsnefndar. Bjóst jeg við því, að hv. flm. frv. (G. Sv.), sem á sæti í fjárhagsnefnd, myndi þar við nánari athugun komast að þeirri niðurstöðu, að ekki væri vert að nema verðhækkunartoll af ull úr gildi. Þess var getið við 1. umr., að margir bændur mundu verða búnir að selja ull sína er tollurinn væri numinn úr gildi, og þá mundi tollurinn sýnilega lenda í vasa þeirra. er keyptu ullina. Síðan málið var til 1. umr. hefi jeg gert eftirgrenslanir og komist á snoðir um, að menn muni þegar farnir að flytja ull sína í kaupstað. Þótt þetta frv. væri samþ. nú þegar og látið ganga gegn um þingið með afbrigðum frá þingsköpum, mundi það þó ekki ná tilgangi sínum. Jeg ætla ekki að neinu leyti að gera upp á milli landbúnaðar og sjávarútvegs, nje leggja dóm á, hvor atvinnuvegurinn eigi hægara aðstöðu á vanalegum tímum, eins og sumir hv. þm. hafa gert. En undir núverandi kringumstæðum hygg jeg, að öllum sje ljóst, að sjávarútvegurinn standi enn ver að vígi en landbúnaðurinn, og fyrst að svo er, sýnist mjer, að maður verði að gera þeim báðum jafnt undir höfði og brjóta eigi rjett á öðrum til að ívilna hinum. Ef jeg hefði álitið, að bændum gæti verið mikið hagræði í afnámi verðhækkunartollsins á ullinni, hefði jeg verið með því. Jeg álít, að þeir eigi ekki svo hægt uppdráttar nú, að þeim væri ofgott að losna við að greiða þessa upphæð í landssjóð, ef þá munaði hana nokkru. En þegar að er gætt, er þetta hverfandi lítil upphæð. Árið sem leið nam verðhækkunartollur af ull um 8461 kr. Það verða 4—10 kr. á heimili og sum enn minna, og sjá allir, að þetta er engin hjálp fyrir bændur. Í ástæðunum fyrir frv. komast flutningsmenn svo að orði, að sjálfsagt sje að láta tollinn af ullinni falla niður nú þegar, ef það gæti ljett eitthvað undir með búendum. Ef svo væri, mundi jeg greiða þessu frv. atkv. mitt. Jeg geri ekki ráð fyrir, að bændur sjeu svo illa staddir, að þessi litli skattur geti orðið þeim til nokkurrar bjargar. Hv. þm. V.-Ísf. (M. Ó.) sýndi fram á, að það væri ekki rjettlátt að ljetta tollinum af ullinni, en láta hann standa óbreyttan á sjávarafurðum. Jeg get verið honum alveg sammála, og það því fremur, er um slíkt lítilræði er að ræða sem tollinn á ullinni. Og ef þingið afnemur verðhækkunartoll á ull, er bein skylda þess að afnema líka tollinn af sjávarafurðunum. Þótt menn vilji bera það fyrir sig, að nokkrir fiskkaupmenn græði á afnámi tollsins, þá ber þess að gæta, að mjög margir selja ekki fisk sinn fyr en beint til útlanda. Þessir menn hafa því sömu rjettlætiskröfu til afnáms tollsins og bændurnir, að því er ullina snertir, en ekki eru tiltök að gera upp á milli þeirra, er bæði kaupa fisk og afla hans, og hinna, er t. d. afla hans að eins. Hvernig ætti að komast fyrir það hjá þeim, er bæði aflar fiskjar og kaupir, hvað hann hefir aflað og hvað hann hefir aftur keypt af öðrum? Get jeg því ekki sjeð minstu ástæðu til að samþykkja þetta frv., af framangreindum ástæðum, því að því fer fjarri, að það komi að þeim notum, sem til er ætlast af hv. flutningsmönnum. Gróðinn lendir í vasa kaupmannanna, þótt tollurinn sje afnuminn, og frv. kemur þeim einum að notum, er leggja ullina inn í eigin verslun, kaupfjelögin.

Auk þessa býst jeg við, að hagur landssjóðs sje ekki svo góður, að hann megi missa þær tekjur, er verðhækkunartollurinn í heild sinni gefur af sjer. Því fer þó fjarri, að jeg vilji hafa verðhækkunartollslögin framlengd á sama grundvelli, en jeg býst við, að einhverra ráða verði að leita, til að halda tekjum landssjóðs við. Ef til vill gætu orðið þó nokkrar tekjur af afurðum síðastliðins vetrar. Finst mjer því, að með það fyrir augum ætti að halda verðhækkunartollinum af þeim afurðum einum, en breyta svo grundvellinum með tilliti til afurða í haust og næsta ár. En ef menn vilja fyrir hvern mun afnema eitthvað af lögunum, þá er miklu rjettara að samþ. brtt. hv. þm. Dala. (B. J.), afnema lögin alveg. Get jeg þó ekki verið með því að rýra svo tekjur landssjóðs. Margir hafa keypt fisk síðastliðinn vetur og miðað við verðið í fyrra, og fengið afarmikinn gróða. Sje jeg því ekki, að neitt rjettlæti væri í því að afnema tollinn á fiskinum nú. Því vil jeg telja allra rjettlátast, að við verðhækkunartollinum sje ekki hróflað nú, hvað framleiðslu snertir, til þessa tíma. En verði verðhækkunartollur gerður að lögum þetta ár, verður að leggja annað til grundvallar, sakir breyttrar aðstöðu.

Annars geri jeg ekki ráð fyrir, að neinn treysti sjer til að færa mönnum heim sanninn um, að sjávarútgerð nú, á vjelskipum og gufuskipum, borgi sig betur en landbúnaðurinn. Báðir atvinnuvegirnir eiga við mikla erfiðleika að stríða, en sjávarútvegurinn er þó miklu ver settur. Jeg segi þetta ekki af því, að jeg sje þm. fyrir sjávarútvegskjördæmi. Jeg þarf ekki annað en benda mönnum út á höfnina, Þeir ættu að geta farið nærri um það hvort skipaeigendur geri það að gamni sínu að láta skip sín liggja aðgerðalaus inni á höfn síðan í apríl í vor. Af þessu má ráða erfiðleika þá, sem nú eru á rekstri sjávarútvegsins.

Hv. 2. þm. Rang. (E. J.) hefði ekki þurft að geta þess, að auðsjeð væri, að annar flm. þessa frv., hv. þm. V.-Sk. (G. Sv.), sæti fyrir sveitakjördæmi. En hvað sem því líður hygg jeg, að fyrir hv. flm. hafi vakað, að frv. þetta mundi að fullu ná tilgangi sínum, en jeg hefi nú reynt að sýna, að svo muni ekki vera, nema að litlu leyti. Get jeg því ekki annað en greitt atkv. móti þessu frv., en skal geta þess, að mjer hefði verið nær skapi að samþ. brtt. á þgskj. 51, ef þetta frv. verður samþ.