12.07.1917
Neðri deild: 8. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 184 í C-deild Alþingistíðinda. (2543)

36. mál, verðhækkunartollur

Magnús Guðmundsson:

Mjer þykir ilt, að inn í umr. um frv. okkar hv. þm. V.-Sk. (G. Sv.) hefir blandast ágreiningur um sjávarútveg og landbúnað. Sú var ekki tilætlun flutningsmanna, og slíkt er óheppilegt fyrir úrslit þessa máls. Ástæðan til þess, að jeg stóð upp, var sú, að jeg tel mjer skylt að bera hönd fyrir höfuð fjárhagsnefndar, sem hv. þm. V.-Ísf. (M. Ó.) fór ómaklegum orðum um. Hann taldi það undarlegt, að nefndin talaði um tímaleysi. En það er ekkert undarlegt, því að eins og áður er sagt verður frv. að ganga fram nú þegar, ef það á að koma að tilætluðum notum. Hann hlýtur því að hafa sagt þetta móti betri vitund. Honum þótti kenna undirferli í nefndarálitinu, á þann veg, að nefndin myndi vilja framlengja verðhækkunartollslögin án ullartolls. Þetta er röng ásökun. Jeg fyrir mitt leyti tel það víst, að lögin falli að fullu úr gildi 17. sept. í haust. Og ástæðan til þess, að jeg vil láta ullartollinn falla burt nú þegar, er sú, eins og jeg tók fram við 1. umr. þessa máls, að þótt tollurinn haldist, kemur hann aldrei í landssjóðinn, heldur fer til milliliða, því að ullin verður ekki flutt út fyrir 17. sept. í haust, en þá falla lögin úr gildi. En um fisk er ekki sama máli að gegna. Mjer er sagt, að búið sje nú þegar að selja mjög mikið af fiski. Þær upplýsingar hefir hæstv. fjármálaráðh. (B. K.) gefið mjer. Þá kemur tollurinn milliliðunum í gróða, þótt lögin verði afnumin nú, að því er til þeirrar vöru kemur. En svo veit jeg ekki annað en að á Siglufirði liggi mikið af síld frá í fyrra, sem Englendingar hafa keypt. Er þá meiningin að sleppa síldinni og gefa Englendingum tollinn? (B. J.: Sú síld verður aldrei flutt burt). Auðvitað verður hún flutt út. Þetta væri ekki annað en að gefa annari þjóð úr landssjóði. Þess ber og að gæta, að ull hefir ekki hækkað í verði síðan í fyrra, en fiskur töluvert. Hv. 1. þm. Reykv. (J. B.) sagði, að menn væru þegar farnir að leggja inn ull sína, og mundi frv. því ekki koma að notum, þótt því væri hraðað. Jeg skal ekki neita því, að ullarkauptíð kunni að vera eitthvað byrjuð. En það er altítt, að ullarkauptíð byrji áður en búið er að kveða upp verðið, og jeg held, að það sje ekki búið enn. Það er því rangt, að lagafrv. þetta nái ekki tilgangi sínum. Sá tilgangur næst strax er frv. verður að lögum. Annars þótti mjer það allskrítin röksemdaleiðsla hjá hv. 1. þm. Reykv. (J. B.), að bændur munaði ekki um að losna við að borga tollinn, en landssjóð munaði um að missa hann. Mjer virðist einsætt, að ef landssjóð munar um að missa tollinn, hljóti bændur að muna um að borga hann.