18.07.1917
Efri deild: 10. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 202 í C-deild Alþingistíðinda. (2562)

36. mál, verðhækkunartollur

Magnús Torfason:

Jeg vil að eins taka það fram, skýrar en hjer hefir verið gert, að ef verðhækkunartollslögin verða framlengd, þá er sjálfsagt að láta þetta atriði bíða þess tíma. Og er jeg hissa á því, að þetta eina atriði skyldi vera tekið til endurskoðunar í hv. Nd., en ekki einu orði vikið að því, hvað menn hygðu að gera við önnur atriði verðhækkunartollslaganna.