25.07.1917
Neðri deild: 17. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 224 í C-deild Alþingistíðinda. (2584)
42. mál, einkasala á mjólk
Jörundur Brynjólfsson:
Nefndin hefir ekki getað fallist á frv. og ekki einu sinni gert brtt. við það, heldur klætt það í alt annan búning, og ekki verður annað sjeð en að allir nefndarmenn hafi orðið sammála. Það gegnir annars furðu, að menn, sem ekkert þekkja til hjer í Rvík, skuli leggja þennan dóm á þetta mál. Plöggin, sem fyrir nefndinni liggja, benda þó í gagnstæða átt við þá niðurstöðu, sem nefndin hefir komist að.
Hv. frsm. (E. A.) hefir algerlega misskilið tilgang frv. Hann er ekki sá að fá einkasölu í sjálfu sjer, heldur er hann sá, að bærinn fái heimild til einkasölu, ef útsölumenn gera ekki það, sem af þeim er heimtað. Annað, sem í frumvarpinu felst, er úthlutunin, að þeir fái mjólkina, sem hennar þurfa. Annað felst ekki í frv. Hjer er um engan gróða að ræða fyrir bæinn, síður en svo, nema þá óbeinan hagnað, sem leiðir af auknum þrifnaði. Aðalatriðið er þetta, að hafa einkasöluna að bakhjarli, ef annað dugir ekki. Af þessum ástæðum, sem jeg gat um, úthlutuninni og þrifnaði, er frv. sprottið.
Jeg skal ekki lengja umræður með því að fara út í nánari atriði þessu viðvíkjandi. Það kemur í ljós við atkvæðagreiðsluna, hvernig hv. deild lítur á málið.
Mjer finst það misskilningur hjá nefndinni, að bænum sje eins auðvelt að hafa hemil á mjólkinni án frv. Jeg skal játa það, að frv. nefndarinnar á þgskj. 94 er til bóta frá því ástandi, sem nú er, en jeg efast um, að bæjarstjórnin geti svift menn leyfi, þótt þeir þverskallist við þeim fyrirskipunum, sem gefnar kunna að vera.
Í frv. á þgskj. 94 er og gert ráð fyrir mjólkurseðlum. Þótt ekki sjeu þeir nefndir í mínu frv., þá vakti jeg þó máls á úthlutunaraðferðum við 1. umr. En þessi aðferð, mjólkurseðlarnir, efast jeg um að nái tilgangi sínum, vegna þess, hve mjólkurflutningar til bæjarins eru misjafnir. Það er mjög stopult, hve mikið berst af mjólk daglega, svo að þetta atriði bætir ekki úr skák. Það eina ráð, sem dygði, væri það, að afgreiðslumenn fengju beinlínis skrá yfir þá, sem þurfa mjólkur við. Enn er það, að kostnaður mundi verða töluverður við seðlana, þótt ekki sje það aðalatriðið. En svo er enn það, að jeg er ekki alveg viss um, að mjólkursalar verði við óskum manna með þessu fyrirkomulagi. Þeir geta skelt við skolleyrum. Útsölumenn verða ekki þjónar bæjarins, heldur vinnumenn framleiðendanna.
Það atriði, að mjólkurframleiðslan minki við einkasöluheimildina, fæ jeg með engu móti skilið, enda hefi jeg enga skynsamlega ástæðu heyrða færða fram fyrir því. Þessi ástæða var borin fram á bæjarstjórnarfundi og nú kemur hún hjer fram á ný. Nú er hjer mjólkurskortur, svo að bærinn fær hálfu minni mjólk en hann má minst án vera. Halda menn nú, að eftirspurnin minki við það, að bærinn fengi einkasöluheimild? Nei, menn myndu einmitt verða heimtufrekari, og það eitt gerði mig dálítið deigan við frv. Vegna þess nú, að mjólkurþörfin er svona mikil, þá er ómögulegt að hafa áhrif á verðið. Mjer dettur í hug ein ástæða, og skal segja hana, fyrst að enginn virðist hafa einurð til þess, en hún er sú, að ef einhver mjólkurframleiðandi selur skemda mjólk, þá er eðlilegt, að honum sje illa við þessa ráðstöfun. En því vil jeg ekki gera ráð fyrir. Viðvíkjandi hreinsun mjólkurinnar þá er það alveg rjett, að það þyrfti að „pasteurisera“ hana, en jeg held, að einmitt það, að bærinn tæki að sjer mjólkina, mundi flýta fyrir þeirri nýbreytni.
Væri jeg viss um, að frv. nefndarinnar, sem er nýr búningur á mínu frv., væri betra en það, þá væri mjer það ekki svo fast í hendi. En nefndarfrv. er óákveðnara; það vantar þann hemil, sem felst í mínu frv. Frv. þeirra má líkja við vænglausan fugl, en mitt er fugl með vængjum.
Viðvíkjandi því, að Mjólkurfjelagið ætli að koma á skipulagi, þá er það gott, en ef það brygðist, þá erum vjer ver settir heldur en ef vjer hefðum þá heimild, sem felst í frv.
Jeg fæ ekki skilið, að undanþáguatriðið geti valdið óánægju. Þeir mjólkurframleiðendur, sem nálægir eru, mundu sjálfir selja, en þeim fjarlægari má á sama standa, hver selur hana.
Að endingu vil jeg mælast til þess, að hæstv. forseti láti fara fram nafnakall um hina rökstuddu dagskrá á þgskj. 93.