25.07.1917
Neðri deild: 17. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 227 í C-deild Alþingistíðinda. (2585)

42. mál, einkasala á mjólk

Einar Jónsson:

Jeg skal ekki lengja umræður, og síst ætla jeg mjer að taka fram fyrir hendurnar á jafnvitmiklum frsm., hv. 2. þm. Árn. (E. A.), sem hjer á hlut að máli og er einnig form. allsherjarnefndar. En jeg get ekki þegjandi hlýtt á það, að oss nefndarmönnum sje núið því um nasir, að vjer höfum enga þekkingu á máli, sem oss hefir verið falið, og vjer vitanlega kynt oss eftir bestu föngum. Jeg andmæli því fastlega þessum áburði hv. 1. þm. Reykv.

(J. B.), um leið og jeg lýsi þeirri skoðun minni, að málinu sje vel borgið með frv. á þgskj. 94.