14.07.1917
Neðri deild: 10. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 245 í C-deild Alþingistíðinda. (2595)
44. mál, stofnun stýrimannaskóla á Ísafirði
Flm. (Matthías Ólafsson):
Eins og frv. ber með sjer þá er ekki ætlast til þess, að ráðist verði í skólastofnunina í haust. Jeg tók það og fram, að húsaleiga á Ísafirði væri miklu lægri en hjer, og að jeg gæti bent á hús, sem fengist gæti þar leigt með góðum kjörum. Þannig er eigi að eins að ræða um meiri þægindi við það að fá nýjan skóla, heldur mundi kostnaðurinn og verða minni en að auka við skólann hjer. Og kenslukrafta má fá alveg eins góða þar og hjer. En prófúrlausnir verða teknar til af skólanum hjer, svo að kröfurnar verði í samræmi. Á Akureyri hefir enginn beðið um skóla, svo að ekki getur þar verið meiri ástæða til þess að setja hann heldur en þar, sem beðið hefir verið um hann.
Það getur vel verið, að hinir landsfjórðungarnir komi á eftir, og hefi jeg ekki á móti því. Þessir skólar eru ekki dýrir, eða þurfa ekki að vera það.
Jeg hjelt fyrst, að hv. þm. S.-Þ. (P. J.) mundi verða fylgismaður þessa frv., því að jeg veit, að hann hefir áhuga á góðum málefnum, en mjer þótti skjóta nokkuð skökku við, þegar hann hjelt, að skólinn mundi verða dýr. Jeg hjelt, að hann mundi gæta þess, að þótt leggja yrði eitthvað meira til skólans, þá sparast þó kostnaður við ferðir og aðra erfiðleika.
Vel mætti vísa frv. til nefndar, og þá líklega sjávarútvegsnefndar, eða jafnvel mentamálanefndar.