14.07.1917
Neðri deild: 10. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 246 í C-deild Alþingistíðinda. (2596)
44. mál, stofnun stýrimannaskóla á Ísafirði
Forsætisráðherra (J. M.):
Jeg get ímyndað mjer, að mikil þörf sje á þessari skólastofnun, en mjer skilst svo, sem að mikið sje eftir að athuga, og yrði það þá gert í nefnd. Jeg heyrði ekki greinilega, hvað hv. flutnm. (M. Ó.) sagði um kostnaðinn við að setja upp skóla þarna eða reisa hús. Ef sá er tilgangurinn að reisa hús, þá er það varla mögulegt fyrir 1. október. Þótt þetta sje nauðsynjamál, þá tel jeg, að aðrar byggingar sjeu samt miklu nær.
Jeg sje ekki í frv. nokkur ákvæði um kennarana og laun þeirra, sem er nokkur galli.
Um það, hvort málið eigi að fara í sjávarútvegsnefnd eða mentamálanefnd, þá er jeg heldur á því, að það fari í hina síðarnefndu. Einmitt undir þá nefnd ættu að heyra öll skólamál, hvers eðlis sem skólarnir eru. Jeg efast ekki einungis um það, að hægt verði að stofna skólann í haust; jeg efast einnig um, að það verði hægt á næsta fjárhagstímabili; einkum vil jeg benda á það, að þar sem gert er ráð fyrir vjelfræðikenslu, þá verður kostnaðurinn enn meiri. Hjer í Reykjavík er varla hægt að halda áfram þeirri kenslu, af því að tæki vantar, og þó sjerstaklega hús.
Jeg get hugsað mjer, að flutningsmenn flytji meir frv. til þess að ræða og undirbúa málið, en að þeir búist við því, að það nái fram að ganga.