14.07.1917
Neðri deild: 10. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 247 í C-deild Alþingistíðinda. (2597)

44. mál, stofnun stýrimannaskóla á Ísafirði

Flm. (Matthías Ólafsson):

Hæstv. forsætisráðherra sagðist ekki hafa heyrt greinilega til mín um byggingu hússins. Jeg tók fram, að þegar stýrimannaskólinn var stofnaður, var hann lengi rekinn í leiguhúsi. Eins mætti fara að hjer, og tók jeg þá fram, að á Ísafirði mætti fá hús með góðri leigu.

Jeg sje ekki, að þetta geti verið nokkur frágangssök; annar kostnaður við stofnunina gæti ekki orðið mikill.

Um frv. er það að segja, að það getur staðið til bóta. Fyrirsjáanlega ræður stjórnin öllu fyrirkomulagi skólans, því að það er reglugerðaratriði; fyrirkomulagið hlýtur að verða líkt stýrimannaskólans.

Það getur verið erfitt að koma skólanum upp 1918, en það getur þá orðið 1919, eða næsta haust, sem fært yrði.

Mjer er sama, hver nefnd fær málið. Það má gjarnan fara til mentamálanefndar, því að þangað ganga búnaðarskólar og barnaskólar.