04.08.1917
Neðri deild: 25. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 253 í C-deild Alþingistíðinda. (2602)

44. mál, stofnun stýrimannaskóla á Ísafirði

Frsm. (Magnús Pjetursson):

Jeg skal ekki þrátta við hv. flm. (M.Ó.) um það, hvort nefndin beri skyn á þessa hluti eða ekki. En hvernig sem því nú er farið vildi hún fara eftir sinni eigin skoðun í þessu máli, en ekki byggja eingöngu á áliti annara.

Hv. þm. V.-Ísf. (M. Ó.) sagði það misskilning hjá nefndinni, að í frv. væri eingöngu átt við smærri skip. Jeg sagði ekki, að eingöngu væri miðað við smærri skip, heldur að aðallega væri við þau miðað, enda er það ekki nema eðlilegt, því að á þeim stöðvum, þar sem skólanum er ætlað að vera, er mest um smáskip. Vel getur það verið rjett, að þörf sje fyrir meiri viðkomu á stýrimannaefnum. En mjer er ekki kunnugt, að stýrimannaskólinn hjer geti ekki tekið á móti svo mörgum, sem þörf er á. Vitanlegt er, að hann getur ekki sjeð fyrir skipstjórum á alla báta, sem eru frá 12—30 smálestir að stærð; handa þeim þarf sjerstök námsskeið, eins og nefndin hefir líka fallist á. Að þessu leyti fer nefndin jafnvel lengra en frv., þar sem hún vill hafa námsskeiðin víðar um land.

Það væri auðvitað kostnaðarminst fyrir stýrimannaefni og þægilegast, að þau þyrftu ekki að sækja nám langt frá heimilum sínum. En það eru fleiri en sjómenm, sem þurfa að sækja nám langar leiðar. Jeg verð að álíta, að sú atvinna, sem sjómenn eru að búa sig undir, sje svo arðvænleg, að ekki þurfi að vorkenna þeim, þótt þeir leggi nokkuð í kostnað, til að afla sjer undirbúningsmentunar.

Hv. þm. V.-Ísf. (M. Ó.) sagði, að mentun stýrimannaefna myndi verða jafnfullkomin þótt skólarnir yrðu fleiri, og þá um leið líka minni. En jeg verð að halda því fram, að meiri líkur eru til, að hún yrði góð, ef lagt er alt kapp á að efla einn skóla. Þm. sagði, að ekki mætti horfa í, þótt þetta myndi auka nokkuð útgjöld landssjóðs, ef það væri nauðsynlegt. Jeg get fallist á það með honum. Það kemur hvergi fram í nefndarálitinu, að það sje vegna kostnaðarhliðarinnar, sem hún hefir ekki getað fallist á frv.

Það er auðvitað rjett hjá þm., að það var óhamingja fyrir Vestfjörðu, að stýrimannaskólinn skyldi ekki lenda þar. Hins vegar finst mjer hann gera nokkuð mikið úr þörf Vestfjarða fram yfir aðra fjórðunga landsins. Ef skólinn hjer væri orðinn svo ónýtur, að það þyrfti að byggja hann upp af nýju — og þess verður að líkindum ekki langt að bíða, — skilst mjer, að hv. þm. V.-Ísf. (M. Ó.) myndi berjast með hnúum og hnefum fyrir, að hann yrði fluttur til Vestfjarða. Það hefir ekki vakað fyrir nefndinni að draga alt til Reykjavíkur. Það er sama, hvar skólinn hefði staðið; hún hefði verið á einu máli um að efla bara einn skóla eftir mætti.

Hv. þm. V.-Ísf. (M. Ó.) sagði, að nefndin hefði alveg eins getað nefnt 10 skóla eins og 4—5. Fyrir nefndinni vakti, að skóli yrði í hverjum fjórðungi, ef skóli á Vestfjörðum kæmist í framkvæmd, auk skólans í Reykjavík. Nefndinni var kunnugt, að Vestmannaeyingar myndu krefjast að fá skóla hjá sjer, ef skóli yrði stofnaður á Ísafirði, enda gætu þeir það með jöfnum rökum og Ísfirðingar.

Ef nú ætti að bæta við einum stýrimannaskóla, væri heldur alls engin sönnun fyrir, að hann ætti að setja á Vestfjörðum fyrst. Ef það væri borið undir sjómannastjett landsins, hvar ætti að setja hann, efast jeg um, að hún myndi vilja setja hann þar.