04.08.1917
Neðri deild: 25. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 256 í C-deild Alþingistíðinda. (2605)
44. mál, stofnun stýrimannaskóla á Ísafirði
Frsm. (Magnús Pjetursson):
Hv. þm. V.-Ísf. (M. Ó.) nefndi í síðustu. ræðu sinni, að hann áliti oflítils krafist af mótorbátaformönnum. Þessi ástæða hefir ekki komið fram fyr, hvorki í greinargerðinni fyrir frv. nje framsöguræðu hans við 1. umr. Jeg er á sama máli og hann um þetta; hitt er annað mál, að það styður ekki frv. hans. Þessum mönnum er ekki meiri vorkunn að koma hingað en öðrum, sem hafa orðið að taka „minna prófið“.
Það var og nýtt hjá hv. flm. (M. Ó.), að fullkomnasti skólinn skyldi vera hjer í Reykjavík, og smærri skólar úti um land. Ef menn hugsa sjer að koma á nýju skipulagi um stýrimannaskóla, þarf að undirbúa það mál vel og yfirvega alt kerfið sem eina heild; en hitt er öfugt, ef svona á að vera, að setja einn skóla, einhversstaðar af handa hófi, lítt hugsað. Ef búið væri að hugsa þetta mál til hlítar væri ekki ólíklegt, að jeg væri með því að hafa æðri stýrimannaskóla hjer í Reykjavík og svo lægri skóla úti um landið. En það, hve þetta er nú illa undirbúið, er einmitt knýjandi ástæða til að frv. það, sem nú liggur fyrir, verði látið bíða. Hægt væri að afgreiða málið með rökstuddri dagskrá, en þar sem nefndin hefir ekki haft þessar nýju ástæður fyrir sjer, skal engin tillaga gerð um það.