22.08.1917
Neðri deild: 40. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 270 í C-deild Alþingistíðinda. (2617)
46. mál, forðagæsla
Magnús Guðmundsson:
Þetta frv. til laga um forðagæslu hefir ekki fundið náð fyrir augum mikils meiri hluta landbúnaðarnefndar.
Í nefndarálitinu á þgskj. 281 tekur meiri hlutinn upp helstu breytingarnar, er við flutningsmenn ætluðum að gera á forðagæslulögunum, og finst honum víst, að hann tæti þær allar í sundur. Fyrsta breytingin er sú, að sýslunefndir, í stað hreppsbúa, kjósi forðagæslumenn. Jeg geri mikið úr þeirri breytingu. Jeg hefi sagt það áður, að jeg teldi þetta forðagæslumál eitthvert stærsta mál landbúnaðarins, og því afarnauðsynlegt, að forðagæslumenn sjeu vel valdir. Jeg veit, að lögin eru víða óvinsæl; bestu menn vilja helst losa sig við þetta starf, og miður hæfir menn verða fyrir því. Jeg er sannfærður um, að ef sýslunefndir ættu að velja mennina, mundi valið ekki mistakast nærri eins og jeg veit dæmi til að orðið hefir. Það segir sig sjálft, að þegar valdir eru menn, sem jafnvel sjálfir verða heylausir, eða valdir með það eitt fyrir augum, að þeir vilji gefa sig í starfið, þá er ekki að búast við góðum árangri. Svo veit jeg dæmi til þess, að heilir hreppar hafa ekki viljað kjósa, og jeg veit ekki, hvernig á að neyða menn til að nota kosningarrjett sinn, og ekki síst þegar hver hreppsbúi álítur, að það sje til ills eins. Nú vil jeg spyrja hv. meiri hluta landbúnaðarnefndar, hvernig eigi að fara að, þegar enginn hreppsbúa vill kjósa forðagæslumanninn? (S. S.: Þá skipa sýslumennirnir hann). Til þess hafa þeir enga heimild eftir lögunum. Þar stendur að eins, að hreppsbúar skuli kjósa mennina, en ekki, að aðrir skuli skipa þá ella. Þetta hefir komið fyrir í Skagafjarðarsýslu, og þótt þar fengjust góð málalok, var það að eins til bráðabirgða, og var búist við breytingu, þar sem búið var að skora á stjórnina að spyrja allar hreppsnefndir á landinu, hvort þær vildu breyta. (S. S.: En ef sýslunefndir neita að kjósa?). Á því er engin hætta. Það má skylda sýslunefndir til þess, en það er ekki hægt að skylda hvern einstakan kjósanda til að kjósa. (M. Ó.: Í lögunum stendur: Hreppsbúar skulu). Já, en jeg meina, að sýslunefndir skuli skyldaðar til þess. Jeg vil spyrja, hvernig hreppsnefndir eigi að fara að á hreppaskilaþingum, þegar enginn vill kjósa, og óska jeg, að hv. meiri hl. landbúnaðarnefndar svari því.
Þá kemur annað atriðið, um dagpeningana. Hv. landbúnaðarnefnd virðist hafa sjeð, að þeir eru heldur lágir, með því að hún hefir nú fært sig svo upp á skaftið að setja „lægst 2 kr.“, í stað „alt að 2 kr.“, en ekki þorir hún að nefna sæmilega borgun. Það er náttúrlega algerlega hlægilegt að hugsa sjer að fá góða menn til að taka þetta verk að sjer fyrir 2 kr. á dag. Og svo er þessi borgun að eins fyrir þá daga, sem þeir eru að heiman, en alls ekki fyrir skýrslugerðina, er þeir framkvæma heima hjá sjer. Jeg verð að halda fast við það, að minna en 5 kr. sje alls ekki boðleg borgun góðum manni.
Þriðja breytingin er um, að engu föstu formi sje fylgt um skýrslugerð og mat á heyjum. Um þá breytingu er það að segja, að jeg er alveg viss um, að skýrslugerðin hefir gert lögin óvinsæl. Það er skýrslugerðin sjálf, en ekki lögin. Þessar skýrslur eru svo flóknar, að það er alls ekki fyrir almenning að búa þær til. Það lítur líka út fyrir, að hv. frsm. meiri hl.
(J. J.) hafi fundið þetta. Hann vill draga úr skýrslugerðinni, en í óverulegum atriðum. Eins er um mat á heyjum. Jeg held, að það sje nú mjög af handahófi. Menn verða að fara eftir sögusögn um gæði heysins, og áætla það í teningsmetrum. Eru þá mörg atriði, sem forðagæslumaðurinn getur ekki vitað með neinni vissu. Forðagæslumenn verða að fara eftir sögusögn um dýpt, breidd og lengd tóftar, og það verður jafnan ónákvæmt. Menn geta ekki sjeð, hvernig hey er verkað, hvort það er fast eða laust, eða yfirleitt hvernig það er, þegar þeir skoða hey á haustin, sem venjulega er ekkert farið að taka á. Matið verður því mjög ónákvæmt. Það kom líka fram hjá hv. frsm. meiri hl. (J. J.), að þetta hefir farið í mesta ólestri í hans sýslu, en að ráð hafa verið fundin til að bæta úr því. Er mjer ekki grunlaust um, að þar hafi verið farið á snið við lögin, eftir því sem honum sagðist frá, því að ekki virðist hafa verið farið að öllu leyti eftir skýrsluformunum. Svo að hv. frsm. (J. J.) er mjer þá sammála um, að skýrsluformunum verði að breyta. Jeg er alveg sannfærður um, að í mörgum hreppum sjeu vandfundnir þeir menn, er kunni að leggja tóftir og hey í teningsmál. Það er mikill reikningur, ef það á að vera nokkuð nákvæmt. Held jeg það því ekkert betra en gömlu aðferðina, að reikna eftir hestatölu, því að innsveitis vita menn nokkurn veginn um, hversu vænt band er hjá hverjum einum, hvernig hey hafa verkast, hve kjarngóð þau eru, og hversu mikið hey þarf venjulega. Hv. frsm. (J. J) viðurkennir þetta líka í nefndarálitinu og segir, að enginn auli geti metið heyin á þann hátt, sem nú skal gera, og því verði að kjósa sæmilega greinda og reikningsfæra menn til þess. Þetta er líka rjett, en það er svo langt frá því, að forðagæslumenn megi vera aular, að þeir verða að kunna mikið í reikningi, vera vel mentaðir menn, ef þeir eiga að geta leyst af hendi þau störf, sem núgildandi lög ætla þeim. Og þá sýnist heldur hjáleitt að ætla slíkum mönnum ekki nema 2 kr. á dag.
Svo að jeg víki aftur að kosningunni, þá sýnist mjer hv. meiri hl. leiða lítil rök að sinni niðurstöðu. Hann segir að eins, að óvíst sje, að það verði til bóta, að sýslunefndir kjósi mennina; hættara við óánægju, og auk þess óviðfeldið, að kjósendur í hreppnum fái ekki að kjósa þá. En þetta er á engu bygt, því að sje sýslunefnd gert að skyldu að kjósa, þá mundi hún vanda valið og ekki fara eftir því, hverjir vilja helst taka starfið að sjer, eins og oft sýnist hafa verið, er hreppsbúar hafa kosið. Jeg býst við, að sýslunefndarmenn hvers hrepps bendi á góða menn í sínum hreppi, er þeir vilja halda fram til starfans, og þá geri jeg ekki ráð fyrir, að sýslunefndin í heild sinni verði því mótfallin.
Þá segir hv. meiri hlutinn, að engar reglugerðir skuli semja. Þessar reglugerðir eru til og þarf því ekki að semja þær, en auðvitað falla þær úr gildi, að svo miklu leyti sem þær koma í bága við lögin.
Hv. frsm. meiri hl. (J. J.) hjelt, að jeg þekti lítið til forðagæslu. Hvað sem nú um það er þá þekki jeg þó eins mikið til skýrslugerða eins og hann, og veit það betur en hann, að þessar skýrslugerðir eru í mikilli óreglu, og illa held jeg að honum gangi að vinsa úr þeim sumum. Jeg veit ekki, hvaða skýrslur það eru, sem hv. frsm. (J. J.) vill láta hagstofuna fá til að vinna úr. Á skýrslunum sjest ekki annað en hvað mikið er gefið upp af heyi í teningsmetrum, en hvaða gagn er að slíkum upplýsingum? Enda felast miklu fyllri upplýsingar í skýrslum um búnaðarástandið, sem árlega eru sendar hagstofunni.
Hv. meiri hluti játar, að forðagæslulögin sjeu óvinsæl, en hann gerir ekkert til að bæta þau, því að brtt. hans eru alveg einskisvirði.
Um brtt. hv. minni hl. er það að segja, að jeg get ekki heldur fallist á þær. Aðalatriðið í mínum augum er það að velja vel forðagæslumennina, og jeg tel það betur trygt með því, að sýslunefndir velji, en með því, að hreppsbúar geri það.