30.07.1917
Neðri deild: 20. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 324 í C-deild Alþingistíðinda. (2645)
50. mál, stofnun landsbanka
Sveinn Ólafsson:
Jeg get verið háttv. allsherjarnefnd þakklátur fyrir meðferð hennar á máli þessu. Hún hefir í rauninni komist að sömu niðurstöðu og við flutningsmenn, að nauðsynlegt væri að breyta þessum lögum og þrætt sömu götur og við gerðum í frv.
Háttv. framsm. hefir gefið skýringar við nefndarálitið og meðferð nefndarinnar á málinu, og bætt ýmsu við, og sje jeg ekki annað en skýringar hans sjeu sanngjarnlegar og rjettar. Að eins eitt atriði í ræðu hans fanst mjer athugavert. Hann mintist á hótanir af hálfu vor flutningsmanna, um að illa mundi fara, ef útibúið væri sett annars staðar en í Suður-Múlasýslu. Mjer finst ekki rjett að kalla þetta hótanir. Það voru í rauninni upplýsingar komnar fram, að gefnu tilefni, um atriði, sem ekki var öllum þingheimi kunnugt, sem sje, að Eskfirðingar og Norðfirðingar buðu símleiðis 180,000 kr. í sparisjóðsfje til bankastofnunarinnar eða til starfsfjárauka fyrir hann, ef hann kæmi í Suður-Múlasýslu.
Jeg get ekki sjeð, hvað móti því gat verið að nefna þetta og sje eigi, að í því felist nein hótun, enda ekkert óeðlilegt eða meiðandi að bjóða þetta fram. Við þessa yfirlýsingu munu þeir og standa.
Mjer fanst því hv. frasm. (M. G.) taka ofdjúpt í árinni um þetta atriði.
Að því er kemur til ræðu hv. 2. þm. N.-M. (Þorst. J.), voru þar ýms atriði athugaverð, en jeg sje ekki ástæðu til að svara þeim öllum. Hann fór í hagfræðisskýrslur og dró fram nokkrar tölur, er áttu að sanna rjett Seyðisfjarðar til bankaútibúsins. Jeg skal ekki fara langt út í hagskýrslurnar. Þær eru heldur leiðinilegar aflestrar, og ekki er skemtilegra að heyra þær lesnar upp. En til að gjalda háttv. þm. líku líkt, vil jeg geta þess, að eftir jarðamatsbókinni frá 1861, eru í Suður-Múlasýslu 3859 jarðarhundruð, en 4166 í Norður-Múlasýslu. Ef talinn er nú upp kvikfjenaður og borin saman jarðræktin, sjest að í Suður-Múlasýslu eru 2825 ræktaðar túnadagsláttur, en 2640 í Norður-Múlasýslu. Í Suður-Múlasýslu eru matjurtagarðar 88000 m2, en í Norður-Múlasýslu 84000 m2, eða 4000 m2 minna á fleiri jarðarhundruðum. Kýr eru á færri hundruðum í Suður-Múlasýslu, 725, en 722 í Norður-Múlasýslu.
Þá má og drepa á útveginn. Í Suður-Múlasýslu eru mótorbátar 57, en róðrarbátar 182, en í Norður-Múlasýslu eru mótorbátar 27 en róðrarbátar 80, og er alt þetta miðað við hagskýrslurnar frá 1913.
Hv. 2. þm. N.-M. (Þorst. J.) telur oss ekki fara með rjett mál, það er tekur til viðskipta Norður-Þingeyinga við Seyðisfjörð, sem hann telur vera mikil og liðug. Ummæli hans um þetta eru ekki rjett. Samgöngur þar á milli eru mjög litlar og varla teljandi aðrar en þær fáu ferðir, sem flóabáturinn Jörundur hefir farið frá Eyjafirði til Seyðisfjarðar. Þess vegna er það ekki rjett að benda á viðskifti Norður-Þingeyinga við Seyðisfjörð til meðmæla útibúi þar. Það þarf ekki annað en að líta á landabrjef til þess að ganga úr skugga um það, að Norður-Þingeyjarsýsla liggur miklu nær Eyjafirði að viðskiftum en Seyðisfirði, enda er svo í reyndinni.
Sami hv. þm (Þorst. J.) boðaði brtt. við 3. umr. þess efnis að koma inn Seyðisfirði eða Reyðarfirði. Um Seyðisfjörð er það að segja, að honum verður ekki komið að með brtt., til þess þyrfti gjörbreytingu á öllu frv. Það væri þá heldur Reyðarfjörður. Eins og jeg hefi áður getið um, þá get jeg ekki greitt atkvæði með því að fastákveða Reyðarfjörð, tel það sama sem að bregða fæti fyrir frv., með því að það er ekki tímabært að setja banka á jafnafskektan stað með jafnlitlum viðskiftum. En hinu geri jeg ráð fyrir, að til þess komi, að flytja þurfi útibúið þangað eftir nokkurn tíma, en sem stendur eru þar ekki þau skilyrði, sem til þessa þarf. Útvegur og verslun er nú mest á Norðfirði, Eskifirði og Fáskrúðsfirði. En af því að þessi skilyrði geta breytst, þá er ekki farið fram á það í frv., að staðurinn sje ákveðinn; í því efni á bankastjórnin að hafa óbundnar hendur, og henni er engin ofætlun að ákveða þann af þessum þrem stöðum, sem líklegastur er.