30.07.1917
Neðri deild: 20. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 326 í C-deild Alþingistíðinda. (2646)
50. mál, stofnun landsbanka
Þorsteinn Jónsson:
Hv. frsm. (M. G.) efaðist um það, að tillaga sú, er samþykt var um málið á Seyðisfirði, bæri það með sjer, að allir nefndarmenn hafi verið einhuga með því, að útibúið yrði sett í Seyðisfirði. En í brjefi sýslumanns er athugasemd, sem ber það með sjer, að gengið hefir verið að því vísu, enda hafði bæði bankastjórn og landstjórn áður ákveðið að hafa útibúið á Seyðisfirði. Jeg get líka vel borið um þetta, því að jeg var á tjeðum sýslufundi, og skýrði sýslumaður tillöguna þann veg, að átt væri við Seyðisfjörð.
Hv. þm. A.-Sk. (Þorl. J.) sagði, að á vetrum væri Austur-Skaftfellingum hægara að sækja til Eskifjarðar en til Seyðisfjarðar. Þetta getur hv. þm. ekki meint í fullri alvöru, því að munurinn á vegalengdinni er að eins fáir km. sje þrædd póstleiðin og þá nokkrum km. lengri til Eskifjarðar. En þar sem sami hv. þm. var að minnast á landpóstana, þá skal jeg taka það fram sem ómótmælanlegt, að Seyðisfjörður er meiri miðstöð pósta en nokkur annar staður á Austfjörðum. Þangað kemur norðanpóstur og þaðan ganga 3 aukapóstar, sem sje til Vopnafjarðar, Borgarfjarðar og Eskifjarðar.
Hv. 1. þm. S.-M. (Sv. Ó.) sagði, að jeg gengi fram hjá því, að þegar væri banki á Seyðisfirði, útibú Íslandsbanka. Jeg gat um það við 1. umr., að þetta útibú hefði ekki svo mikla peninga, að það gæti fullnægt peningaþörfinni, og að bæði útibúin mundu hafa nóg að gera, þótt sett væru hvort við hliðina á öðru.
Sami hv. þm. kom fram með skýrslur, sem áttu að sýna, að mótorbátaútvegur væri meiri í Suður-Múlasýslu en í Norður-Múlasýslu, en hann gleymdi að geta þess, að einmitt frá mesta mótorbátastaðnum í Suður-Múlasýslu, Norðfirði, eru farnar fleiri ferðir til Seyðisfjarðar en til nokkurs annars staðar.
Hótunum Suðurfirðinga geri jeg ekki mikið úr, og tel vart rjett fyrir þingið að byggja mikið á þeim. Þeir, sem aðallega hafa haft þetta við orð, eru Norðfirðingar, ekki fyrir það að banki yrði ekki settur í Suður-Múlasýslu, heldur fyrir það, ef banki yrði ekki stofnaður hjá þeim, að þeir mundu þá sjálfir setja upp öflugan sparisjóð.
Ekki skil jeg það, að samanburður hv. 1. þm. S.-M. (Sv. Ó.) á ýmsum hagfræðitölum hafi sannfært marga. Þótt Sunnmýlingar eigi 3 kúm fleira en Norðmýlingar, þá munu þeir varla þurfa heilt bankaútibú til að útvega peninga til að framfleyta þessum þrem beljum. Hann sagði, að Norður-Múlasýsla væri metin meira að dýrleika, en minna ræktuð. Ef þetta væri nokkur sönnun þá sýndi þetta, að meira peningamagn þyrfti í sýsluna til þess að hrinda ræktuninni betur áfram. Sami hv. þm. sagði enn fremur, að ferðir væru litlar milli Norður-Þingeyjarsýslu og Seyðisfjarðar. Hv. þm. veit þá ekki, að Þorsteinn kaupm. Jónsson hefir haldið uppi stöðugum ferðum milli þessara staða, svo að það er enginn staður á Austurlandi, sem Norður-Þingeyingar hafa meiri samgöngur við en Seyðisfjörður, og þær eru meiri en samgöngur þeirra við Akureyri.
Jeg skal að endingu taka það fram, að það eru ekki Norðmýlingar, sem valdir eru að deilunni um staðinn; það eru þeir hv. þm. S.-M. og hv. þm. Dala. (B. J.), sem þar eiga upptökin, og vel getur svo farið, þótt ekki muni þeir hafa til þess ætlast, að tillögur þeirra verði til þess að spilla fyrir málinu og koma því í óefni.