03.08.1917
Neðri deild: 24. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 332 í C-deild Alþingistíðinda. (2652)

50. mál, stofnun landsbanka

Jón Jónsson:

Jeg á hjer brtt., sem jeg tel mjer skylt að gera grein fyrir.

Eins og kunnugt er, hefir nefndin fallist á frv. og vill láta ákveða stofnun útibús í Suður-Múlasýslu. Jeg hefi ekki getað sætt mig við þetta frv., með fram vegna þess, að gangur þess hefir verið mjög kynlegur. Til þess þó að hliðra til fyrir Sunnmýlingum, get jeg sætt mig við, að það verði sett í Suður-Múlasýslu, þó þannig, að til þess verði ákveðinn sá staður, sem haganlegastur er öllum almenningi, en það er Reyðarfjörður, og við hann ættu hv. flutnm. að geta sætt sig, svo að allar deilur fjellu þá niður.