22.08.1917
Efri deild: 36. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 335 í C-deild Alþingistíðinda. (2659)
50. mál, stofnun landsbanka
Jóhannes Jóhannesson:
Jeg verð að segja, að jeg er hissa á, að mál þetta skuli hafa verið borið upp á Alþingi, og enn meira hissa á því, að hv. Nd. skuli hafa eytt miklum tíma til þess og látið það ganga fram, í stað þess að vísa því þegar á bug.
Frumvarp þetta er ekki einasta allsendis óþarft, heldur mundi Alþingi gera sig sekt í megnasta hringlandaskap og yfirgangi, ef það næði fram að ganga, og skal jeg nú færa þessum orðum mínum stað.
Allsendis óþarft er frumvarpið af því, að enga lagabreytingu þarf til þess að ná því, sem það vill fá framgengt, að fyrsta útibúið frá Landsbankanum á Austurlandi verði sett í Suður-Múlasýslu.
Í 9. gr. laga um stofnun Landsbanka, 18. september 1885, var svo ákveðið, að bankinn skyldi með samþykki landshöfðingja svo fljótt sem auðið væri setja á stofn aukabanka eða framkvæmdarstofur fyrir utan Reykjavík, einkum á Akureyri, Ísafirði og Seyðisfirði.
Árið 1912 var Landsbankinn búinn að setja á stofn útibúin á Akureyri og Ísafirði, en ekki á Seyðisfirði. Þótti þinginu þá bankastjórnin vera of bundin í því efni, hvar útibúið fyrir Austfirðingafjórðung skyldi sett og samþykti lög, er staðfest voru 22. október s. á., þess efnis, að í stað orðsins „Seyðisfirði“ í 9. gr. bankalaganna, skyldi koma „á Austfjörðum“. — Ekki á Austurlandi, eins og í frv. stendur. — Landsbankastjórnina brestur því síður en svo lagaheimild til þess að setja útibúið á hvern þann af fjörðunum í Suður-Múlasýslu, sem henni sýnist. Því það orkar þó væntanlega ekki tvímælis, að firðirnir í Suður-Múlasýslu teljist til Austfjarða, en að setja útibúið upp á Velli eða Skriðdal, hefir víst engum til hugar komið.
Megnasti hringlandaskapur væri það af Alþingi, að láta frv. þetta verða að lögum, af því, að þingið hefir sjálft og þegar með lögunum frá 1885 ákveðið, að landsbankastjórnin, að áskildu samþykki landsstjórnarinnar, skuli ráða því, hvar útibú frá bankanum skuli sett, sem og er eðlilegt og sjálfsagt. Þessa ákvörðun sína hefir þingið endurnýjað með lögunum frá 22. október 1912 og aukið valdsvið bankastjórnarinnar í því efni. Veit jeg ekki hvað er hringlandaháttur, ef það væri ekki það, að þingið færi 1917 að draga úr valdi því í þessu máli, er það hefir fengið landsbankastjórninni, og þrengja valdsvið hennar í því, sem það tók 1912.
Yfirgang sýndi þingið landsbankastjórninni, ef frv. þetta yrði að lögum, með því að þá væri gengið á valdsvið hennar og lög sett um atriði, sem löggjöfin sjálf hefir ákveðið að bankastjórnin skuli ráða, og hún í fylstu lagaheimild hefir ráðið til lykta fyrir sitt leyti.
Landsbankastjórnin hefir nefnilega, að fengnum öllum upplýsingum um málið, bæði frá oddvitum hlutaðeigandi sýslunefnda og öðrum, ákveðið, að útibúið skuli sett á Seyðisfjörð, samþykt reglugerð fyrir það og afgreitt málið til landsstjórnarinnar. Núverandi atvinnumálaráðherra virðist hafa fallist á reglugerðarfrv. með lítilli breytingu, sem bankastjórnin hefir samþykt, og var þó komin önnur bankastjórn en var, er málið var afgreitt í fyrstu. Með öðrum orðum, að minsta kosti fjórir bankastjórar, þeir Björn Kristjánsson, Oddur Gíslason, Jón Gunnarsson og Magnús Sigurðsson og atvinnumálaráðherrann hafa, að fengnum nauðsynlegum upplýsingum, ákveðið í fylstu lagaheimild að setja útibúið fyrst um sinn á Seyðisfjörð. En svo kemur þetta frv., sem marið hefir verið í gegnum hv. Nd., ekki með meiri hluta atkvæða, heldur með rjettum helmingi atkvæða þeirrar deildar, þegar hún er fullskipuð, og segir við bankastjórn og landsstjórn: Nei, þar megið þið ekki setja útibúið, þótt hagur bæði alls almennings á Austurlandi og Landsbankans sjálfs krefjist þess.
Því miður er viðskiftaþörf Austurlands eigi fullnægt með því, þótt Landsbankinn setji þar nú á stofn eitt útibú, hvar sem það verður sett. Viðskiftaþörfin krefur, að útibú frá bönkunum verði sett á Vopnafirði, Norðfirði, Reyðarfirði, Fáskrúðsfirði eða Djúpavogi, auk Seyðisfjarðar, eða að minsta kosti, að bankarnir styrki öfluglega sparisjóði á þessum stöðum. En til þess er það nauðsynlegt, að báðir bankarnir hafi aðalútibú sín fyrir Austurland á miðstöð þess, Seyðisfirði.
Jeg er því fyllilega samdóma niðurstöðu þeirri, sem hv. allsherjarnefnd þessarar deildar hefir komist að í máli þessu, og hefi jeg hjer undirstrikað nokkur atriði í nefndaráliti hennar.
Ef frumvarpið næði fram að ganga, mundi bardaginn um það, hvar í Suður- Múlasýslu útibúið skyldi sett, fyrst byrja fyrir alvöru, milli Sunnmýlinga innbyrðis, því að hver fjörður hefir heimtað og mundi heimta, að það verði sett hjá sjer. Á hinn bóginn hafa sýslunefndir Norður-Þingeyjarsýslu og Norður-Múlasýslu og bæjarstjórn Seyðisfjarðarkaupstaðar krafist þess einum rómi, að útibúið yrði sett á Seyðisfjörð. Sýslunefnd Austur-Skaftafellssýslu hefir ekki látið spursmálið til sín taka, enda má henni nokkuð á sama standa.
Þegar nú máli þessu verður vísað til stjórnarinnar, er það gert í trausti þess, að hún afgreiði það frá sjer og hlutist til um, að ákvarðanir Landsbankastjórnarinnar í því, er jeg nú hefi nefnt, komist sem fyrst í framkvæmd.