17.07.1917
Neðri deild: 12. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 355 í C-deild Alþingistíðinda. (2672)
51. mál, forðagæsla
Sveinn Ólafsson:
Af því, að jeg er að miklu leyti sammála hv. flm. (E. J.), kann jeg ekki við að þegja. Jeg verð að minsta kosti að standa upp til að lýsa yfir því, að jeg er honum samdóma um það, að lögin nái ekki nándar nærri tilgangi sínum. Skoðun fyrri hluta vetrar er gagnslaus. Mörgum þykja afskifti forðagæslumannanna meiðandi og nærgöngul. Forðagæslumennirnir vita sjaldan hið rjetta um heyforðann. Þeir verða að fara eftir því, sem þeim er sagt en eins og hv. flm. (E. J.) tók fram er framtalið ekki altaf ábyggilegt. Mjer er óhætt að fullyrða, að þar sem jeg er kunnugur hefir forðagæslan ekki borið neinn verulegan árangur. Sumstaðar hefir árangurinn verið verri en enginn. Ásetning forðagæslumanna hefir lamað ábyrgðartilfinningu sumra og áhuga þeirra á því að sjá sjer farborða. Jeg þekki líka dæmi þess, að menn, sem álitnir voru vel birgir við fyrstu skoðun, hafa komist í þrot með skepnur sínar, þótt engu væri fargað af heyjunum. (B. J.: Þeir hafa fjölgað á fóðrunum). — Nei, en þeir treystu á forðagæslumanninn, og það varð þeim til falls. — Jeg sje ekki annað en að lögin sjeu meiðandi og lítilsvirðandi fyrir bændastjettina. Það er afaróviðfeldið, að gamall og reyndur bóndi, sem um mörg ár hefir búið góðu búi og aldrei skeikað í ásetningu, skuli þurfa að taka á móti einhverjum spjátrungi, sem kosinn hefir verið forðagæslumaður, og láta hann setja sjer marklitlar reglur. (B. J.: Hví lætur hann þá ekki kjósa sjálfan sig fyrir forðagæslumann?). Góðir bændur vilja ekki gefa sig í það, sem þeir sjá, að getur ekki orðið að neinu gagni. Jeg tel sjálfsagt að nema forðagæslulögin úr gildi, en vildi gjarnan að í stað þeirra væru samin heimildarlög er heimiluðu sýslunefndum eða hreppsnefndum að gera ráðstafanir til forðagæslu, eftir því sem þeim þætti best við eiga. Jeg legg til, að bæði þessu frv. og því næsta á dagskránni verði vísað til landbúnaðarnefndar, til þess að hún sjóði upp úr þeim heimildarlög, ef um nokkra uppsuðu getur verið að ræða. En aðalatriðið tel jeg að losna við forðagæslulögin. Þau eru af mörgum illa haldin og því nauðagagnslítið víða, en jafnvel skemmileg, þar sem þau lama tilfinninguna fyrir sjálfsábyrgð, og hvarvetna eru þau auvirðandi fyrir bændur.