17.07.1917
Neðri deild: 12. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 357 í C-deild Alþingistíðinda. (2674)
51. mál, forðagæsla
Sigurður Sigurðsson:
Jeg stend ekki upp til þess að ræða frv., álít það naumast þess vert. En jeg vildi nota tækifærið til þess að beina þeirri spurningu til stjórnarinnar, hvað gert hafi verið af hennar hálfu í tilefni af þingsál.till. frá Nd. Alþingis 1915. Þingsál.till. þessi fór í þá átt að skora á landsstjórnina að leita umsagnar allra hreppsnefnda á landinu um forðagæslumálið, hvort þær teldu lög nytsamleg í þeim efnum, og ef svo væri, hvort þá mundi heppilegra, að það væru almenn lög fyrir landið alt, eða að eins heimildarlög, er heimili sýslu- eða sveitarsamþyktir. Enn fremur átti stjórnin að vinna úr álitsskjölum hreppsnefnda og semja frv. til breytinga á núgildandi forðagæslulögum, ef þess væri alment óskað. Tillaga þessi kom fram út af samskonar frv. og því, er nú liggur fyrir, og hún var fyllilega rjettmæt, því að hjer í deildinni komu fram mismunandi skoðanir á þessu máli. Jeg geng út frá því, að stjórnin hafi ekki látið undir höfuð leggjast að verða við þessari áskorun, þótt ekki hafi hún sjeð sjer fært, eða fundið ástæðu til, að leggja fram neitt frv. Fyrir því vildi jeg nota tækifærið til að forvitnast um aðgerðir stjórnarinnar í þessu máli.