17.07.1917
Neðri deild: 12. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 361 í C-deild Alþingistíðinda. (2677)

51. mál, forðagæsla

Þorleifur Jónsson:

Það er mikið alvörumál, hvernig eigi að fyrirbyggja felli. Jeg get ekki sjeð, að forðagæslulögin frá 1913 hafi að neinu leyti haft áhrif í þá átt. Jeg vil minna á, að síðan þau voru sett hefir verið fellir á hverju ári, 1914 á Suður- og Vesturlandi og jafnvel eitthvað á Norðurlandi, 1915 suðaustan á landinu og 1916 á austur- og norðausturlandinu, og það í sumum kjarnasveitum landsins, á hinum bestu fjárjörðum, þar sem ekki hafði fje fallið í manna minnum. Þetta hefir orðið þrátt fyrir forðagæslulögin.

Það er rjett, sem hv. þm. Dala. (B. J.) sagði, að mikið íhugunarefni væri, hvort ekki væri hægt að finna örugt ráð við horfelli, einmitt nú á þessum voðatímum. En jeg hefi aldrei gert mjer glæsilegar vonir um árangur af þessum lögum, og tel engan skaða skeðan, þótt þau væru strax numin úr gildi. Það væri æskilegt, ef einhver snjall maður fyndi ráð við hættunni. Lögin frá 1913 hafa ekki orkað miklu. Skoðanirnar eru líkastar meinlausum búsvitjunum presta, enda hafa skoðunarmenn ekkert vald til að framfylgja því, sem þeir kunna að sjá betur en aðrir. Valið á skoðunarmönnum mun ekki heldur altaf sem heppilegast, og enga trú hefi jeg á, að sýslunefndum takist valið betur en sjálfum hreppsbúum, en í nýja frv. til forðagæslulaga er valið á skoðunarmönnunum fengið sýslunefndum í hendur. Jeg gæti jafnvel betur trúað, að þetta nýja frv. fremur spilti en bætti úr skák. En það er ekki til umræðu nú, svo að jeg læt staðar numið að sinni, hvað það nýmæli snertir.

Jeg vil ekki ráða til, að frv. sje felt, heldur sje það sett í landbúnaðarnefnd, með það fyrir augum, að hún kunni að finna einhver heppilegri ráð en þessi blessuð forðagæslulög, sem hafa svo áþreifanlega sýnt að ekki geta komið að gagni, til að tryggja bústofninn gegn ótíð og harðindum. Við sveitabændurnir vitum, að eina ráðið til að mæta harðindunum eru fyrningar af góðum heyjum. Fyrningamennirnir komast aldrei á kaldan klaka. Fóðurforðabúr eru því helsta ráðið, sem til mála getur komið, með innlendum og útlendum fóðurbirgðum; en á þessum tímum er varla um annað en innlent fóður að ræða. Eina bjargráðið er, að fóðurbirgðirnar aukist.