15.08.1917
Neðri deild: 34. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 687 í B-deild Alþingistíðinda. (268)
4. mál, samþykkt á landsreikningum 1914 og 1915
Frms. (Magnús Guðmundsson):
Jeg verð þá að líta svo á, sem bæði frv. og næsta mál, till., sjeu á dagskrá í senn og að rætt verði um hvorttveggja jöfnum höndum. Jeg mun þá ganga í gegnum till. nefndarinnar og jafnframt svara háttv. þm. V.-Ísf. (M. Ó.).
Hinn háttv. þm. (M. Ó.) taldi hina tvöföldu dagsetning villandi. Jeg sje ekkert athugavert við hana, síður en svo. Hann sagði, að með þessu lagi væri annaðhvort greitt ofseint í landssjóð eða úr honum. En þetta er ekki rjett. Það getur staðið svo á, að reikningshaldara sje ókleift að koma öllu af sjer fyrir áramót. Setjum svo, að skip komi 31. desember t. d. á höfn á Austfjörðum með tollskyldar vörur. Hvernig á þá að tilfæra greiðsluna? Þá er sýnilegt, að ómögulegt er að koma greiðslunni í landssjóð fyr en í febrúar eða mars næsta ár. Ef ekki er notuð tvöföld dagsetning í þessu tilfelli, verður annaðhvort að telja þessa upphæð greidda ofseint, sem væri rangt, því að ómögulegt er að koma henni fyrir áramót, eða telja hana með tekjum næsta árs, sem líka er rangt, því að hinar tollskyldu vörur komu ekki á því ári. Einmitt þessi tvöfalda dagsetning sýnir bæði, hvaða ári greiðslan heyrir til, og hve nær hún hefir komið inn. Þetta er svo skýrt og einfalt, að jeg er hissa á því, að yfirskoðunarmenn skuli hafa sett út á þetta.
Þá hafa yfirskoðunarmenn fundið að því, að landsreikningurinn kæmi ofseint frá stjórninni. Nefndin er þessu samþykk og leggur því til, að skorað sje á stjórnina, að landsreikningurinn fyrir hvert ár sje tilbúinn ekki síðar en í lok nóvembermánaðar næsta ár á eftir. Nú fekk nefndin ekki athugasemdirnar og svörin fyr en seinast í síðastliðnum mánuði, og er það altof seint. Að vísu er hjer um mikið verk að ræða, en samt mun vera hægt að koma því af svo tímanlega, að tilbúið sje í nóvember haustið eftir.
Þá leggur nefndin til, að hraðað sje hinni umboðslegu endurskoðun, í samræmi við till. yfirskoðunarmanna. En með því að sjálfsagt mun þetta leiða til aukins kostnaðar, leggur nefndin að eins til, að endurskoðuninni sje hraðað eftir föngum, og er þetta þá að skoða sem athugagrein fyrir stjórnina.
Þá er ágreiningur milli yfirskoðunarmanna landsreikninganna og stjórnarinnar um það, hvernig færa eigi vexti af landsfje því, sem starfsmenn landsins hafa undir höndum um lengri eða skemri tíma. Yfirskoðunarmennirnir virðast vilja telja það alt með óvissum tekjum, en stjórnin vill, þegar um stofnanir er að ræða, að vextir af geymslufje þeirra sje talið þeim til tekna. Það sýnist ekkert vera að athuga við þetta hjá stjórninni; vextirnir ganga til landsins þarfa, eins og til var ætlast og vera ber, og mun rjettast að láta fjármáladeildina ráða, hvernig hún hagar þessari reikningsfærslu.
Þá þótti háttv. þm. V.-Ísf. (M. Ó.) ekki rjett að láta landsstjórnina ráða í hverju einstöku tilfelli, hver gangskör gerð sje um innheimtur, sem eigi ganga greiðlega. Hún er þar engan veginn einráð; hún veit, hver ábyrgð hvílir á henni, ef hún vanrækir þær um skör fram; það á að vera nægilegt aðhald fyrir hana. Hins vegar liggur það í hlutarins eðli, að þegar stjórnin er sannfærð um, að engar líkur eru til, að fjeð verði innheimt, þá er tilgangslaust að láta fara fram lögtak og ekki annað en einber kostnaður. En til að gefa stjórninni ekki ofslakan tauminn þá tekur nefndin það fram, að þess sje að sjálfsögðu vænst, að þess sje vandlega gætt, að landssjóður verði ekki fyrir halla að óþörfu. Þá sagði háttv. þm. V.-Ísf.
(M. Ó.), að nefndin mundi hafa misskilið till. um laun landsfjehirðis. Getur verið, en það er þá af því, að hún er óljóst orðuð. En ef hjer er um misskilning að ræða, þá er meiningamunurinn milli hans og nefndarinnar enginn og óþarfi um þetta að deila. Þá koma enn tvær upphæðir, sem yfirskoðunarmönnunum þykja athugaverðar; önnur upphæðin er borguð landssímastjóranum fyrir að hafa umsjón með símanum í Reykjavík; eru það 500 kr. Hin er 200 kr. þóknun fyrir að semja skýrslu yfir störf landssímans. Nefndin er á því, að það sje mjög varúðarvert að láta menn í þjónustu landsins fá aukaborgun fyrir störf þau, sem heyra undir verkahring þeirra, nema þegar óhjákvæmilegt er, og í þessu tilfelli má það naumast teljast svo.
Um borgun fyrir læknishjálp vegna slysa í þjónustu landssímans hefi jeg ekki annað að segja en stendur í nefndarálitinu, og ber þar lítið á milli og þess, sem yfirskoðunarmenn segja.
Þá er að minnast á ferðakostnað verkfræðinga vegna nýrra vitabygginga. Þar er nefndin ekki á sömu skoðun sem yfirskoðunarmennirnir. Nefndin álítur eðlilegast, að ferðakostnaður við byggingu nýrra vita sje talinn með byggingarkostnaðinum, og þeirri reglu hefir verið fylgt frá upphafi; enda væri fjeð, sem ætlað er til ferðakostnaðar í fjárlögunum, altof lágt, ef ekki væri svo að farið. Það er og auðsjeð, að þingið hefir ætlast til þess; ella mundi það hafa veitt meira fje til ferðakostnaðar. Það hefir komið fyrir, að verkfræðingur hefir orðið að fara utan vegna einnar vitabyggingar. Kostnaður við þá ferð eina hefir orðið meiri en alt ferðakostnaðarfjeð það ár. Það er annars lítil ástæða til að þrátta um þetta, því að hjer er ekki um annað en reikningsfærslu að ræða, en hvorki aukin útgjöld nje sparnað fyrir landssjóð.
Þá kemur till. yfirskoðunarmanna um iðnskóla, að þeim sje því að eins veittur styrkur, að þeir sjeu í raun og veru iðnskólar, en ekki að eins alþýðuskólar. Nefndin felst á þetta og beinir því til stjórnarinnar að hafa eftirlit með því. Um styrkinn til sýslubókasafna er það að segja, að svo einkennilega stendur á, að bæði athugasemdin og svarið er rangt, en landsreikningurinn rjettur. Nefndin hefir komist að því, að villan í athugasemdinni kemur fram við það, að tillag til sýslubókasafns í Mýra- og Borgarfjarðarsýslu er talið 120 kr., í stað 20 kr., og ekki tilfært tillag til sýslubókasafns Vestur- Ísafjarðarsýslu, sem var 120 kr.
Yfirskoðunarmenn leggja til, að skrá sje gerð við hver áramót yfir frímerki, sem sjeu í vörslum stjórnarráðsins og póstmeistara. Nefndin hefir ekki á móti þessu, þótt það sje dálítil fyrirhöfn og fremur þýðingarlítið; hún leggur því til, að skrá þessi sje samin og fylgi landsreikningnum til yfirskoðunarmanna.
Þá kem jeg að landsreikningnum 1915, og minnist fyrst á Hvanneyrarskólann. Í athugasemdum við landsreikninginn 1914 er það látið óátalið, að skólastjóri notaði fje, sem veitt var í einum lið, til útgjalda handa öðrum lið; aftur taka yfirskoðunarmenn 1915 nokkru
harðara á því. Nefndin hefir tekið þannig í þetta, að eftir atvikum megi það vera óátalið, að skólastjórinn á Hvanneyri hefir eigi varið fje skólans að öllu leyti eftir tilætlun fjárlaganna, þar sem ætla má, að slíkt sje gert vegna verðhækkunar, og því til þess að komast hjá að nota meira fje til skólans í heild en veitt var. Þetta er ástæðan til þess, að nefndin vill láta þessa aðferð skólastjórans óátalda að þessu sinni, og er því í raun rjettri ekki mikill ágreiningur hjer milli yfirskoðunarmanna og nefndarinnar. Jeg veit, að þessum skólastjóra er mjög illa við að fara fram úr fjárveitingu til skóla síns, og því mun hann hafa skift fjenu milli liða, til að komast hjá því. Nefndin lætur það því óátalið í þetta sinn, en slær því engan veginn föstu, að svo megi vera framvegis.
Mig furðar á því, að háttv. þm. V.-Ísf. (M. Ó.) skyldi ekki minnast á 138. athugasemd yfirskoðunarmannanna 1915, um skýrslur um Þjóðmenjasafnið, því að þeir leggja það til, að fjárveitingin, 300 kr., sje talin til ábyrgðar. Það er rjett athugað hjá yfirskoðunarmönnunum, að fjeð var veitt til að gefa út skýrslurnar, en ekki til að semja þær. En það er auðsætt, að ef telja ætti þessa upphæð til ábyrgðar 1915, þá ber einnig að telja 300 kr., sem veittar voru til hins sama 1914, til ábyrgðar. Hjer er ekki um stóra upphæð að ræða, og nefndin komst að þeirri niðurstöðu, að ekki væri ástæða til að telja hana til ábyrgðar, meðal annars af því, að í fjárlögunum 1916 og 1917 er breytt um orðalagið, og þar, í staðinn fyrir að gefa út, sett að semja.
Síðast er þá að minnast á landsverslunina. Svo sýnist af upplýsingum, sem fram eru komnar, að töluverð skekkja sje í reikningum hennar. Jeg skil vel í, hvernig á því muni standa. Í byrjun var gert ráð fyrir, að hún mundi verða lítil og standa skamma stund, og því mun eigi hafa þótt nauðsyn að hafa sjerstakt reikningshald fyrir hana. En svo smájókst hún, án þess þó að reikningur hennar væri greindur frá landsreikningnum. Skil jeg ekki í öðru en að hægt sje að kippa þessu í lag, með því að gera gangskör að því að semja reikning verslunarinnar frá byrjun, enda stendur til, að svo verði gert, eða öllu heldur, það mun þegar byrjað á verkinu. Mun að því loknu eflaust sjást, hvernig stendur á skekkju þeirri, sem nú virðist vera í reikningunum, en búast má við að eingöngu stafi af því, að reikningum verslunarinnar var upphaflega blandað saman við reikninga landssjóðs. Þegar þessu starfi er lokið, er sjálfsagt, að reikningurinn sje fenginn hinni umboðslegu endurskoðun til athugunar og síðan yfirskoðunarmönnum landsreikninganna, er síðan láti athugasemdir sínar með svörum fylgja landsreikningunum, og að síðustu sje svo alt þetta lagt fyrir Alþingi.
Eitt vildi jeg enn mega minnast á. Það verður ekki sjeð af athugasemdum þeim og svörum, sem hjer liggja fyrir, að yfirskoðunarmenn landsreikninganna og stjórnin vinni mikið saman; liggur það þó í augum uppi, að hagkvæmt muni vera og hyggilegt, að yfirskoðunarmennirnir fari við og við til stjórnarinnar og spyrjist þar fyrir um vafaatriði; við það mundu þeir oft losast við að gera athugasemdir. Við þetta gætu landsreikningarnir með athugasemdum og svörum orðið fyrirferðarminni, gleggri til yfirlits og kostnaðarminna að gefa þá út. Annars sýnist samvinnan milli fjármáladeildarinnar og yfirskoðunarmanna ekki hafa verið sem best að þessu sinni; þar sýnist brydda á dálítilli stífni, sem alls ekki má eiga sjer stað.